Hrökklaðist frá völdum eftir „besta díl Íslandssögunnar“

„Við fengum áfall,“ sagði Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þá borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eftir fund þar sem lág­marks­upp­lýs­ingar í mál­efnum REI voru loks veittar. Það var ekki endi­lega efni máls­ins, sem fór þvert í kokið á sjálf­stæð­is­mönnum enda var kynn­ingin svo snaut­leg að erfitt var að leggja mat á gjörn­ing­inn. Það var miklu fremur aðdrag­and­inn, leyndin, skortur á upp­lýs­inga­gjöf og ótrú­legur hraði í máls­með­ferð sem þeim gramd­ist veru­lega. Ekki leið á löngu þar til borg­ar­stjór­inn hrökkl­að­ist frá völdum, rúinn trausti vegna máls­ins.

Við erum stödd snemma þess ein­kenni­lega árs, 2007 – fyrir sléttum tíu árum síðan.

Stjórn Orku­veitu Reykja­víkur sam­þykkti að stofna hluta­fé­lag utan um erlend verk­efni fyr­ir­tæk­is­ins, sem að tíð­ar­anda voru kölluð útrás­ar­verk­efni.

Til­lög­una flutti Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og hún var sam­þykkt sam­hljóða. Þetta var enda skyn­sam­leg til­laga og hug­myndin svosem engin nýj­ung. Orku­veitan (OR) hafði þegar stofnað félagið Enex, einkum utan um verk­efni í Kína.

Það hafði verið gert til að lág­marka ábyrgð móð­ur­fé­lags­ins ef ein­hver áföll yrðu og nú voru fleiri verk­efni í aug­sýn víðs vegar um heim­inn. Nýja félagið, Reykja­vik Energy Invest (REI), átti að halda utan um þau öll.

Í þessum verk­efnum átti fyrst og fremst að byggja á þeirri sér­þekk­ingu og reynslu sem hafði byggzt upp innan Orku­veitu Reykja­víkur á mörgum ára­tugum.

En stofnun REI fór ekki fram í tóma­rúmi. FL Group undir for­ystu Hannesar Smára­sonar og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar hafði í árs­byrjun stofnað Geysi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár