Upplifði ævintýri ástarinnar og snemmbæran missi

Ólafur Högni Ólafsson missti eig­in­mann sinn, Gunnar Guð­munds­son, eftir bar­áttu hans við krabba­mein. Ólafi Högna fannst um tíma það ekki vera þess virði að lifa eftir að Gunnar dó. „Ég hugs­aði jafn­vel um að drepa mig“. Ólafur Högni kynnt­ist Raul Andre Mar Nacaytuna tveimur árum eftir and­lát Gunnars heit­ins og trú­lof­uð­ust þeir í sumar.

Upplifði ævintýri ástarinnar og snemmbæran missi
Ólafur Högni og Raul Saman í Þing­holt­unum í Reykja­vík. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sólin skín skært þennan sum­ar­dag og Ólafur Högni Ólafsson tekur bros­andi á móti mér í stiga­gang­inum í fjöl­býl­is­hús­inu sem hann býr í í Þing­holt­unum. Hund­ur­inn Snúður heilsar kurt­eis­lega og leggst svo á teppi í íbúð­inni og liggur þar nær hreyf­ing­ar­laus í þá rúma tvo klukku­tíma sem við Ólafur Högni spjöllum saman.

Kærasti Ólafs Högna, Raul Andre Mar Nacaytuna, heilsar hlý­lega og kveður síðan. Hann ætlar á kaffi­hús niðri í bæ.

Íbúðin er glæsi­leg; nútíma­leg og aug­ljós­lega hugað að hverjum hlut. Hvítt, rautt og svart eru aðal­lit­irnir.

Ólafur Högni er í sum­ar­fríi en hann vinnur hjá slökkvi­lið­inu á Reykja­vík­ur­flug­velli.

„Ég er eini sam­kyn­hneigði mað­ur­inn sem ég veit um sem er í slökkvi­lið­inu.“

Ladykiller

Ólafur Högni, sem er mennt­aður húsa­smiður, ólst upp í Njarðvík.

„Ég var kall­aður „ladyk­iller“ þegar ég var ung­lingur af því ég átti svo mikið af kærustum. Ég var hepp­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár