Helgi Magn­ús­son Fjár­festir­inn gam­al­reyndi er eig­andi Fjöl­miðla­torgs­ins ehf, sem gefur út DV.is. Mynd: Torg

Tæpt tap hjá DV

Útgáfu­fé­lag DV hefur náð meira jafn­vægi í rekstri en áður. Engu að síður skilar það tapi og tekjur lækka í erf­iðri sam­keppni við ríkið, erlenda sam­fé­lags­miðla og umhverf­is­aug­lýs­ingar.

Útgáfu­fé­lag DV.is, Fjöl­miðla­torgið ehf, tap­aði tæpum fjórum millj­ónum króna í fyrra, á ári þar sem tekjur lækk­uðu um 14 millj­ónir.

Árið áður hafði það hagn­ast um þrjár millj­ónir króna.

Félagið, sem var stofnað 2022 og keypti DV.is út úr Torgi ehf, sem gaf líka út Frétta­blaðið og fór í þrot 2023, hefur þó aldrei skilað jákvæðu sjóð­streymi. Skuldir félags­ins við Helga Magn­ús­son, eig­anda félags­ins, juk­ust úr 63 millj­ónum króna í 82 millj­ónir á árinu.

Til sam­an­burðar tap­aði Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, 461 milljón króna í fyrra og fékk 600 millj­ónir króna í nýtt hlutafé frá fjár­sterkum eig­endum.

DV, sem var áður næst­mest lesna dag­blað lands­ins skammt á eftir Morg­un­blað­inu, hefur glímt við erf­iðan rekstur allt frá ald­ar­mót­unum. Annar fjöl­mið­ill í eigu Helga, frí­blaðið Frétta­blaðið, sem var áður mest lesna blað …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár