Mynd: AFP

Súpa hugsjóna, eiginhagsmuna og ótta: Hvað er Evrópusambandið?

Evr­ópu­sam­bandið nær yfir um fjórar millj­ónir fer­kíló­metra. Rúmlega 450 millj­ónir manna búa í ríkjum þess. ESB er eitt stærsta hag­kerfi heims. Starfs­manna­fjöldi sam­bands­ins nemur tug­þús­undum.

Fræjum Evr­ópu­sam­bands­ins var sáð í sviðna jörð eftir seinni heims­styrj­öld, þegar sex lönd stofn­uðu Kola- og stál­banda­lag Evrópu árið 1951. Löndin voru Belgía, Frakk­land, Holland, Ítalía, Lúx­em­borg og Vestur-Þýska­land.

Þótt banda­lagið væri efna­hags­banda­lag var ásetn­ingur þess póli­tískur.

Stál og kol voru mik­il­væg­ustu hrá­efni her­gagna­fram­leiðslu þess tíma. „Samruni kola- og stálfram­leiðslu ... mun ekki aðeins gera stríð milli Frakk­lands og Þýska­lands óhugs­andi heldur efn­is­lega ómögu­legt,“ sagði þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, Robert Schuman, í frægri ræðu.

Kola- og stál­banda­lag­inu var ætlað að hemja alræmdan fransk-þýskan ríg og tryggja frið í álf­unni. Ekki leið þó á löngu uns fræið tók að spíra.

Auðar blaðsíður í fornri höll

Svo vel þótti takast til með sam­vinnu um kol og stál að löndin sex ákváðu að styrkja böndin enn frekar.

Hinn 25. mars árið 1957 komu full­trúar þjóð­anna saman í Róm til að und­ir­rita samn­ing um víð­tækara efna­hags­banda­lag. Í …

Kjósa
67
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Allt það sem Sif Sigmarsdóttir lætur frá sér fara er vandað og vel íhugað sem margir mættu taka sér til fyrirmyndar.
    Að þessu sinni drepur hún niður í sögunni að venju og að þessu sinni á upphaf Evrópuambandsins.
    Bestu þakkir fyrir málefnalega og upplýsandi greinarskrif!
    6
  • Gisli Palsson skrifaði
    Mjög gott!
    4
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Mjög fróðleg grein takk fyrir
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár