Maður labbar ekki fram hjá Evrópufána á hverjum degi og segir takk

Kri­stof Magnús­son er þekkt­ur rit­höf­und­ur og leik­skáld sem á þýska móð­ur og ís­lensk­an föð­ur. Hann hef­ur bú­ið í Þýskalandi frá blautu barns­beini, sem barn í Ham­borg og full­orð­inn í Berlín, en er vel kunn­ug­ur á Ís­landi og tal­ar ís­lensku. Hvernig ætli hann upp­lifi að búa í landi inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins?

Kristof, sem hefur þýtt fjölda íslenskra bókmenntaverka yfir á þýsku, er sjálfur nýbúinn að vera með nýjasta skáldverk sitt, Die Reise ans Ende der Geschichte, á metsölulista Der Spiegel, bók sem hefst í partíi í rússneska sendiráðinu í Róm stuttu eftir að Berlínarmúrinn féll. Sem þekktur höfundur í þýsku samfélagi, vel að sér í stjórnmálunum og samfélagsumræðu, má segja að hann sé gjörkunnugur því. Þessa dagana er hann stöðugt á ferðinni á hinu þýskumælandi svæði að lesa upp úr vinsælli bók sinni. Þó næst í skottið á honum sem staldrar við á milli lesta til að velta þessu fyrir sér. 

Þýðir á milli tungumálaKristof Magnusson er metsöluhöfundur á þýskumælandi svæðum en hefur líka verið öflugur þýðandi og þýtt mikið af íslenskum skáldverkum yfir á þýsku.

Öðruvísi fyrir land sem er eyja

Hann telur að margt sé náttúrlega öðruvísi við að búa í Þýskalandi en á Íslandi. „Sagan og stærðin, …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Mæli með að Íslendingar girði sig í brók 29. ágúst og merki X við JÁ á kjörseðlinum varðandi áframhald samningaviðræðna um inngöngu í ESB, varðandi þessi litlu 20% sem upp á það vantar - og kjósi svo auðvitað aftur um endanlegan samning þegar hann er klár!

    Maður er enn með hausinn undir hendinni eftir volið og vælið í okkur eftir bankahrunið 2007 þar sem þýskir og evrópskir bankar afskrifuðu sjö þúsund milljarða (hvað eru mörg 0 í því?) af hrunskuldum íslensku bankaþjófanna í tólf þúsund milljarða gjaldþroti landsins og féllum í fang alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Meira að segja forsetinn þáverandi bað rússa um aðstoð sem var neitað, sem betur fer. Við erum alltaf fyrstir á hnén þegar eitthvað bjátar á, vældum m.a. lán frá færeyingum ofan í alla skuldasúpuna.

    Ætlum við í derringi okkar að endurtaka þann ömurleika í einhverju fáránlegu stoltrugli sem engin innistæða er fyrir? Við þurfum aðstoð við fjárlagagerð og sterkari mynnt til að reka landið, ekki gleyma tveimur núllunum sem voru tekin af krónunni fyrir 45 árum þegar hún var orðin bara 0,2 eð 0,3% af dönsku krónunni sem hún miðaðist við upphaflega við lýðveldistöku. Við erum laus við spillingarliðið úr íslensku valdakerfi, nú er tækifæri til framþróunar á forsendum jafnaðar og gerast 28. aðildarþjóðin að ESB.
    3
  • Birgit Braun skrifaði
    Jæja..."þjóðverjar hafa bara ekki svo góðan smekk" hvað varðar mat ...borið saman við? ......ég kýs að búa á Íslandi og búin að gera það í 30 ár...en þýsk: brauð, grænmeti, ávextir, ostur, jurtir, kjötvörur....húffda...hvar verslar hann að hann finnur ekki muninn🤔
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár