Hótar nágrönnum vegna skógarelda

Reyk leggur yfir hluta Banda­ríkj­anna vegna skóg­ar­elda í Kanada. Banda­ríkja­for­seti er ósáttur.

Hótar nágrönnum vegna skógarelda
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti í Joint Base Andrews í Maryland í gær á leið í mót­töku á vegum FIFA. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hót­aði á föstu­dag að hækka tolla á Kanada til að standa straum af kostn­aði vegna reyk­meng­unar frá gróð­ur­eldum sem hefur lagst yfir stóran hluta Banda­ríkj­anna.

Þykkur reykur frá gróð­ur­eldum sem berst frá Kanada og norð­ur­hluta Minnesota hefur leitt til við­var­ana um óholl loft­gæði víðs vegar um Banda­ríkin.

Í dag voru 937 log­andi skóg­ar­eldar í Kanada og flestir þeirra voru úr bönd­unum, sam­kvæmt kanadíska upp­lýs­inga­kerf­inu um gróð­ur­elda.

„Þetta er vís­vit­andi van­ræksla og er að verða árlegur við­burður sem kostar Banda­ríkin millj­arða doll­ara,“ sagði Trump á Truth Social og bætti við að „kostn­að­inum af þess­ari mengun verður nauð­syn­lega að bæta við TOLLANA sem Kanada greiðir nú þegar.“

Trump sak­aði Kanada um að „við­halda ekki“ skógum sínum á réttan hátt og van­rækja „grunnd­vallar stjórnun skógar og hreinsun á rusli.“

Hann sagð­ist ætla að hringja í Mark Carney for­sæt­is­ráð­herra „til að kom­ast að því …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið undanfarið ár