Wojciech Jarosz kom til Íslands fyrir fjórum árum og vann sem stjórnandi í farangursþjónustu á Keflavíkurflugvelli. „Ég kynntist unnustunni minni á Íslandi, hún er yndisleg manneskja,“ segir hann.
Hann er nú 28 ára gamall og stundar endurhæfingu á Grensásdeild eftir að frí í Karíbahafinu reyndist honum örlagaríkt. „Ég er hérna til að venja líf mitt við notkun hjólastóls og standa á fætur einn daginn,“ segir hann. „Ég sakna vina minna og fjölskyldu í Póllandi en bráðum fer ég þangað í frí og sé þau öll. Svo það gleður mig. Það er mikilvægt að vinna ekki bara í líkamlegri getu heldur einnig andlegu hliðinni.“
Áfallið átti sér stað þegar hann ferðaðist til karabíska eyríkisins Trinidad & Tobago til að upplifa kjötkveðjuhátíðina með vini sínum sem hann kynntist einnig á Íslandi. „En áður en karnivalið byrjaði ákvað ég að læra á brimbretti,“ segir hann. „Ég vil ekki segja að það hafi verið …





























Athugasemdir