Átta ástæður fyrir því að vextir hækka aftur

Hag­kerfið kólnar, atvinnu­leysi vex og hag­vöxtur minnkar en Seðla­bank­inn hækkar engu að síður vexti í dag. Pen­inga­stefnu­nefndin segir ástæð­una ein­falda: Verð­bólga er enn of há og horfur hafa versnað.

Átta ástæður fyrir því að vextir hækka aftur
Stjórinn Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri og for­maður pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans. Mynd: Golli

Seðla­bank­inn hækk­aði í morgun meg­in­vexti um 0,25 pró­sent og verða þeir nú 7,75 pró­sent. Allir nefnd­ar­menn pen­inga­stefnu­nefndar studdu ákvörð­un­ina.

Það gerði bank­inn þrátt fyrir að hann spái minni hag­vexti, auknu atvinnu­leysi og meiri slaka í þjóð­ar­bú­inu en áður. Venju­lega myndi slík þróun draga úr þörf fyrir hærri vexti.

Skýring bank­ans er hins vegar sú að verð­bólgu­vand­inn hafi versnað meira en kólnun hag­kerf­is­ins vegur upp á móti. Pen­inga­stefnu­nefndin seg­ist því telja nauð­syn­legt að herða taum­hald pen­inga­stefn­unnar til að koma í veg fyrir að verð­bólga fest­ist enn frekar í sessi.

1. Verðbólgan er enn of mikil

Verð­bólga hefur verið yfir fimm pró­sentum það sem af er ári og mæld­ist 5,2 pró­sent í apríl. Það er meira en tvö­falt verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans, sem er 2,5 pró­sent.

Í Pen­inga­málum kemur fram að verð­bólga hafi auk­ist það sem af er ári og að und­ir­liggj­andi verð­bólga hafi einnig hækkað. Hún var …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár