Hæstu gjöldin í Garðabæ, skuldirnar í Hafnarfirði og skuldaaukningin á Nesinu

Þegar fjár­mál sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru skoðuð má sjá að Sel­tjarn­ar­nes hefur aukið skuldir sínar um ríf­lega 500 pró­sent og Hafn­firð­ingar eru skuld­sett­astir allra íbúa.

Hæstu gjöldin í Garðabæ, skuldirnar í Hafnarfirði og skuldaaukningin á Nesinu
Hafn­ar­fjörður Hafn­ar­fjörður er bæði með hæstu nettóskuld­irnar sem hlut­fall af íbúum og með mestar skuldir á hvern íbúa. Mynd: Golli

Hafn­firð­ingar eru skuld­sett­astir af öllum íbúum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu miðað við nettóskuldir sem hlut­fall af tekjum. Hver íbúi þar í bæ skuldar tvær millj­ónir sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá töl­fræði­vefnum Metill.is, en lægstu skuldir á íbúa eru í Kópavogi og Reykja­vík. Mesta skulda­aukn­ingin á kjör­tíma­bil­inu er á Sel­tjarn­ar­nesi þar sem skuldir aukast um 518 pró­sent á einum ára­tug.

Garð­bæ­ingar þurfa að sætta sig við hæstu gjöldin þegar kemur að útsvari og fast­eigna­gjöldum. Kostn­aður á hvern íbúa í Kópavogi er lægstur, sem þýðir að sveit­ar­fé­lagið eyðir minni fjár­munum í þjón­ustu við íbúa en önnur sveit­ar­fé­lög. Á móti kemur er Kópa­vogur með lægstu skuld­irnar á hvern íbúa og í almennum rekstri á sveit­ar­fé­lag­inu.

Þá má finna út á vef Metils að dregið hefur úr launa­kostn­aði stjórn­sýslu og skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar um 16 pró­sent á kjör­tíma­bil­inu, en mörg fram­boð sjá fyrir sér enn frek­ari nið­ur­skurð á þessum sviðum.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið undanfarið ár