Opinberlega viðurkennd auðæfi Viktors Orban, leiðtoga Ungverjalands, eru frekar hófleg: þónokkur sparnaður og einbýlishús í Búdapest sem hann á með öðrum.
En kjósendur í landinu sem Transparency International telur það spilltasta í ESB eru á öðru máli. Og þeir gætu látið Orban gjalda fyrir það í þingkosningum sunnudaginn 12. apríl sem gætu bundið enda á 16 ára valdatíð hans. Það væri högg fyrir bæði Bandaríkjastjórn og Rússland, sem hafa stutt og litið til líkans hans að valdasamþjöppun og upprætingu frjálslyndis.
Það er efnahagurinn
Auðurinn sem innsti hringur Orbans hefur safnað sér ýtir undir sívaxandi gremju þjóðar sem glímir við lítinn hagvöxt, mikla verðbólgu og versnandi opinbera þjónustu.
„Áróðursvél ríkisstjórnarinnar virkaði vel á meðan efnahagsástand okkar var tiltölulega gott,“ sagði Zoltan Ranschburg, stjórnmálaskýrandi hjá hugveitunni Republikon, við fréttaveituna AFP.
En það hefur ekki verið gott í mörg ár, bætti hann við.
„Þetta eru …































Athugasemdir