I.
Magnús Þorkell hélt fyrirlestur við opnun Hugvísindaþings með yfirskriftinni Hvað má og hvað má ekki? Akademískt frelsi á tímamótum. Þar fjallaði hann um gríðarlegar breytingar sem orðið hafa á háskólaumhverfi í Bandaríkjunum – eins og sagði í tilkynningu um fyrirlesturinn: „Í kjölfar stríðsins á Gaza 2023, endurkjörs Donalds Trump 2024 og nýrra upplýsinga úr Epstein-skjölunum 2026 standa akademískar stofnanir nú höllum fæti.“
Þegar fyrirlesturinn hófst mátti sjá að efnið brann á fyrirlesaranum; fíngerður maðurinn ólgaði af kröftugri tilfinningu þegar hann fjallaði um starfsumhverfið ytra, bæði eftirlit með starfi á háskólasvæðum, með kennurum og nemendum, og því hvernig fjárveitingar hafa verið skertar, jafnvel stöðvaðar.
Því má velta fyrir sér hvaða áhrif téð framvinda á eftir að hafa bæði á evrópska og íslenska fræðimenn. Segja má að Magnús Þorkell sé allt í senn, íslenskur, bandarískur og evrópskur fræðimaður, maður með tvöfalt ríkisfang, hér heima og í Bandaríkjunum.
Aðspurður af hverju …






























Athugasemdir (3)