„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem verið er að fylgjast með þér, þá er það veruleiki sem þú þarft að díla við,” segir Magnús Þorkell Bernharðsson, Mið-Austurlanda­fræðingur við Williams College í Banda­ríkjunum og gesta­prófessor við guðfræði- og trúarbragða­fræði­deild HÍ – sem nýverið flutti hér á landi fyrir­lestra, annan um Íran og eldfimt ástand vegna innrásar þar, hinn um aðþrengt akademískt frelsi í Banda­ríkjunum.

Magnús Þorkell Bernharðsson talar bæði arabísku og persnesku. Hann leggur upp úr því að geta sjálfur lesið frumheimildir.
Magnús Þorkell Bern­harðs­son talar bæði arab­ísku og pers­nesku. Hann leggur upp úr því að geta sjálfur lesið frum­heim­ildir. Mynd: Golli

 I.

Magnús Þorkell hélt fyrir­lestur við opnun Hugvísinda­þings með yfir­skriftinni Hvað má og hvað má ekki? Akademískt frelsi á tímamótum. Þar fjallaði hann um gríðarlegar breytingar sem orðið hafa á háskóla­umhverfi í Banda­ríkjunum – eins og sagði í tilkynningu um fyrir­lesturinn: „Í kjölfar stríðsins á Gaza 2023, endur­kjörs Donalds Trump 2024 og nýrra upplýsinga úr Epstein-skjölunum 2026 standa akademískar stofnanir nú höllum fæti.“

Þegar fyrir­lesturinn hófst mátti sjá að efnið brann á fyrir­lesaranum; fíngerður maðurinn ólgaði af kröftugri tilfinningu þegar hann fjallaði um starfs­umhverfið ytra, bæði eftirlit með starfi á háskóla­svæðum, með kennurum og nemendum, og því hvernig fjár­veitingar hafa verið skertar, jafnvel stöðvaðar. 

Því má velta fyrir sér hvaða áhrif téð framvinda á eftir að hafa bæði á evrópska og íslenska fræðimenn. Segja má að Magnús Þorkell sé allt í senn, íslenskur, bandarískur og evrópskur fræði­maður, maður með tvöfalt ríkisfang, hér heima og í Banda­ríkjunum.

…
Kjósa
106
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞJ
    Þórdís Jónsdóttir skrifaði
    Hafið þökk fyrir góða grein og mikinn fróðleik
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mjög áhugavert og fróðlegt innlegg í þá umræðu sem er ofarlega á baugi
    6
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Takk fyrir þessa frábæru grein! Mjög upplýsandi og áhugaverð.
    8
  • Áslaug Sigurjónsdóttir skrifaði
    Áhrifarík grein. Skil aðeins betur umhverfið þarna en biblíusögurnar koma þaðan er það ekki
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár