Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkunin?

Stýri­vaxta­hækkun gerir lán dýr­ari, dregur úr eyðslu og fjár­fest­ingu og hægir þannig á hag­kerf­inu til að ná niður verð­bólgu. Vextir hafa þó verið háir um nokk­urt skeið án þess að það ráði nið­ur­lögum verð­bólg­unnar.

Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkunin?

Seðla­bank­inn hefur hækkað stýri­vexti í fyrsta sinn síðan í ágúst árið 2023. Vextir bank­ans eru nú 7,5 pró­sent, sem er hækkun um 0,25 pró­sentu­stig.

Vaxta­hækk­unin í gær byggir á því að verð­bólga er aftur komin í 5,2 pró­sent, und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur auk­ist og verð­bólgu­vænt­ingar hafa hækkað. Bankinn segir að olíu- og hrá­vöru­verð hafi hækkað vegna átaka við Persaflóa og að hætta sé á meiri verð­bólgu­þrýst­ingi ef kjara­samn­ingar opn­ast aftur síðar á árinu.

Meg­in­á­stæður verð­bólg­unnar, eins og þeim er lýst núna, eru ekki bara of mikil inn­lend eft­ir­spurn heldur líka hækkun opin­berra gjalda um ára­mót, launa­hækk­anir sem þegar er búið að semja um og ytri áhrif frá hrá­vöru­mörk­uðum. Vextir vinna þó illa á slíku til skamms tíma: Þeir lækka ekki olíu­verð, snúa ekki við gjald­skrár­hækk­unum hins opin­bera og stöðva ekki sjálf­krafa launa­skrið sem þegar er hluti af kjara­samn­ingum.

En hvaða áhrif hefur hækk­unin á íslenskan almenn­ing og af hverju hafa háir …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár