Gulir fossar gleðja

Í fyrsta sinn síð­an 2023 flæða loðnu­hrogn í kör á Akra­nesi. „Vinnsl­an hófst á mánu­dag­inn,“ seg­ir vinnslu­stjór­inn en mik­il verð­mæti fel­ast í hrogn­un­um.

Gulir fossar gleðja

Þó það gæti litið þannig út við fyrstu sýn þá er hvorki mjúkt smjör, kartöflustappa né gylltur, þeyttur rjómi sem rennur ofan í sótthreinsuð plastkörin hjá Brimi á Akranesi þessa dagana, heldur langþráð loðnuhrogn. Fölgulur hrognastraumurinn gleður mannskapinn sem skiptir með sér sólarhringsvöktum í léttu sjómistrinu sem liggur yfir vinnslusalnum á Skipaskaga enda Skagamenn almennt lengi verið ginnkeyptir fyrir gula litnum – gulir og glaðir.

„Við höfum ekki fengið loðnu síðan 2023, það hefur ekkert verið,“ segir Gunnar Hermannsson, vinnslustjóri uppsjávarafla hjá Brimi. Nánast enginn loðnukvóti var gefinn út á landinu síðastliðinn vetur og alls enginn veturinn á undan. Hér hafa menn saknað þessa smágerða fisks mikið. „Vinnslan hófst á mánudaginn um leið og Venus kom inn, nú erum við að klára að vinna úr Svani,“ segir hann.

Svanur RE 45 hafi komið inn með fullfermi en Venus NS 150 sé mun stærra skip. „Þeir koma báðir með fimmtán hundruð …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár