„Ísland gæti orðið fyrsta Evrópulandið til að ganga til liðs við vaxandi hóp þjóða sem er að þróa sáttmála um jarðefnaeldsneyti,“ segir Tzeporah Berman, stofnandi Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty Initiative, alþjóðlegs tengslanets sem hefur það markmið að binda enda á útbreiðslu jarðefnaeldsneytis í gegnum alþjóðlegan sáttmála. Berman hefur verið aðgerðasinni í yfir þrjátíu ár og var árið 2024 á lista TIME100 yfir áhrifamestu leiðtoga heims í loftslagsmálum. Í febrúar heimsótti hún Ísland til þess að hvetja yfirvöld til þess að taka þátt í samtalinu um sáttmálann.
Á meðan Íslandsdvölinni stóð var för Berman heitið upp á Sólheimajökul ásamt hópi aðgerðasinna og listafólks sem flutti tónlistaratriði, ræður og gjörninga í dalnum við jökulsporðinn sem var þakinn ís ekki alls fyrir löngu. Í frostinu, undir bláum himni, hljómaði ómþýð rödd tónlistarkonunnar Néfur í bland við hljóðupptökur af dýnamískum jöklinum sjálfum – brak, þrusk, ískur og rennandi vatn sem áður var ís. Néfur …































Athugasemdir