Á Facebook má sjá vídeó þar sem Aqqalukkuluk ávarpar þann sem horfir, greinir mál og miðlar vitneskju. Þannig fann blaðamaður hann eftir að hafa horft og hlustað á áhrifaríka greiningu á því að í umfjöllun fjölmiðla um Grænland sé verið að enduróma eintóna narratívu; sagan sé flóknari en svo.
Þegar Aqqalukkuluk, þriggja barna faðir, þjónustustjóri hjá upplýsingatæknifyrirtæki og ættaður frá Sisimiut, er spurður hvað knýi hann til að tjá greiningar sínar á Facebook berst í tal færslan sem vakið hafði athygli blaðamanns.
„Fyrst og fremst finnst mér eins og grænlenska frásögnin sé ekki sögð. Danskir fjölmiðlar virðast ætla að segja hana fyrir okkur og mistekst það. Þegar maður horfir á stöðuna og á danska fjölmiðla, eins og TV2 News og Jyllands-Posten, þá eru þeir með þema sem kallast Kampen om Grønlands fremtid – baráttan um framtíð Grænlands.
En þetta snýst ekki bara um framtíð Grænlands. Því þegar land …































Athugasemdir