Náttúrubarnið í Sænautaseli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.

Náttúrubarnið í Sænautaseli

Sérstök tilfinning er að koma í endurbyggðu húsin í Sænautaseli. Það er eitthvað ævintýralegt við staðinn og húsin sem þar eru, hvort heldur er gamli bærinn eða fjárhúsin sem nú eru orðin að veitingastað. Sænautavatn er rétt við bæinn. Stundum er vatnið kyrrt eða að vindurinn gárar vatnið og á veturna er það ísilagt. Yfir vetrarmánuðina er enginn á vettvangi nema kannski fuglinn fljúgandi. Mánaskinið sveipar umhverfið dulúðlegum bjarma. 

Á sumrin ráða þar ríkjum Björn Hallur og Lilja Hafdís Óladóttir, sem ólst upp á bænum Merki á Jökuldal þar sem hún býr enn. Lilja er náttúrubarn sem líður best í guðsgrænni náttúrunni.

Lilja var ekki barn sem fór að leika sér. Leikurinn hennar fólst í því að ganga á fjöll eða þvælast um sveitina. Vinnusemin var mikil og ung fór Lilja að vinna sveitastörf á sumrin. „Það var alltaf gaman á sumrin, alveg frábært.“

Kvaddi móður sína 

Lilja er elst …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár