Skúli um prófkjörið: Heiða átti betra skilið

Borg­ar­full­trú­inn Skúli Helga­son seg­ist ætla að taka fjórða sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar fyr­ir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Hann og Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir voru einu borg­ar­full­trú­ar flokks­ins frá síð­ustu kosn­ing­um sem gáfu kost á sér og hvor­ugt náði mark­miði sínu.

Skúli um prófkjörið: Heiða átti betra skilið

Skúli Helgason borgarfulltrúi segir að Heiða Hilmisdóttir borgarstjóri hafi átt betra skilið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar, sem fram fór í gær. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Skúla í kjölfar niðurstöðu prófkjörsins, þar sem Pétur Marteinsson var kjörinn nýr oddviti flokksins.

Heiða hafnaði í öðru sæti í prófkjörinu, aðeins fimmtán atkvæðum frá því að tapa því sæti fyrir Steinunni Gyðu Guðjónsdóttur, sem lenti í þriðja sæti. Skúli Helgason sjálfur hafnaði í fjórða sæti en hafði stefnt að öðru sætinu.

Í yfirlýsingu sinni segir Skúli að niðurstaðan endurspegli mikla endurnýjun innan flokksins, en leggur jafnframt sérstaka áherslu á stöðu borgarstjórans. „Heiða átti betra skilið eftir þau miklu og góðu störf sem hún hefur unnið fyrir okkur jafnaðarmenn undanfarin ár en pólitíkin getur verið miskunnarlaus,“ segir Skúli.

Hann lýsir prófkjörinu sem „lýðræðisveislu“ sem hafi skilað „miklum breytingum og endurnýjun eins og kallað var eftir“ og óskar nýjum frambjóðendum til hamingju með kosninguna. …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég var ofbeldisfullur“
3
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
6
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár