Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“

Fjórir ein­stak­lingar sem unnið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Íslandi segja þörf á að breyta lögum og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angrun fólks sem vinnur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau komið upp sínu eigin tengsla­neti til að styðja hvert annað og passa upp á öryggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þolenda vændis.

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
Undir rauðu regn­hlíf­inni Bryn­hildur, Stella og Logn. Mynd: Golli

Ofbeldi þrífst þar sem þögnin ræður og þar sem fólk treystir sér ekki til að leita hjálpar. Þetta segir stofn­andi Rauðu regn­hlíf­ar­innar, hags­muna­sam­taka kyn­lífs­verka­fólks. Þegar lag­ara­mmi og sam­fé­lags­leg við­horf skapa ótta við að sæta ákæru, brott­vísun eða útskúfun þreng­ist svig­rúmið til að segja frá og verja sig. 

Fólk sem starfar eða hefur starfað í kyn­lífs­iðn­aði lýsir marg­breyti­legum veru­leika. Sum upp­lifa að skýr mörk og stjórn á eigin vinnu­að­stæðum geti aukið sjálf­stæði og öryggi, jafn­vel meira en í ýmsum lág­launa­störfum þar sem yfir­menn og við­skipta­vinir fara yfir mörk. Á sama tíma er bent á að for­dómar séu þyngsti bagg­inn; við­brögð umhverf­is­ins geti verið óvægin og ógnin við að missa hús­næði, atvinnu eða mann­orð sé raun­veru­leg. „Glæpa­væð­ing ein­angrar mann,“ segir ein þeirra, og önnur varar við því að „að glæpa­væða ýtir undir óör­yggi og hættu“.

Krafa þeirra sem stíga fram er skýr: að yfir­völd hlusti, trúi og tryggi að kerfin …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Alveg sama hvað fólki finnst um þessa atvinnugrein, þá megum við ekki gleyma að þetta er fyrst og fremst fólk sem á líka skilið mannlega reisn, virðingu, hlýju og öryggi. Það fæðast ekki allir til forréttinda og fólk gerir það sem þarf til að lifa af. Sýnum mennsku við fólk í viðkvæmri stöðu,
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár