Mynd: Golli

Sveitarstjórnarkosningar móta landsmálin

Kosn­ingar til sveit­ar­stjórna munu setja mark sitt á árið og gætu hrein stjórn­ar­skipti átt sér stað í Reykja­vík­ur­borg í fyrsta sinn í langan tíma. Stjórn­ar­and­staðan gæti náð vopnum sínum á þingi á nýju ári en fjöl­mörg mál eru lík­leg til að leiða til átaka.

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar verða haldnar 16. maí 2026 en þá verður tæpt eitt og hálft ár frá því að rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins tók við völdum eftir alþing­is­kosn­ingar í lok árs 2024. Þekkt er að ráð­andi rík­is­stjórn­ar­flokkum sé refsað í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og hefur fylgi Við­reisnar og Flokks fólks­ins dalað í könn­unum á meðan flokkur Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra mælist skýjum ofar.

Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segja þó að margt eigi eftir að koma í ljós. Fylgi Mið­flokks­ins á lands­vísu geti smit­ast yfir í sveit­ar­stjórn­ar­málin en kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar virð­ast ánægðir með sinn flokk. Þrátt fyrir slakt fylgi á lands­vísu njóti Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur mik­ils stuðn­ings í ákveðnum sveit­ar­fé­lögum. Vinstri­flokk­arnir sem þurrk­uð­ust út af þingi í alþing­is­kosn­ing­unum, Vinstri græn og Píratar, gætu náð inn fólki í Reykja­vík enda 23 sæti í boði fyrir borg­ar­full­trúa.

Þannig gætu allir flokkar lýst yfir sigri, hver með ólíkum hætti, aðfara­nótt 17. maí.

Blokkamyndun í Reykjavík

…

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist árið 2026?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár