Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“
Crisartista „Þú lætur fólk aldrei sjá þig í dragi fyrir utan klúbbana.“ Mynd: Golli

Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“

„Þú lætur fólk aldrei sjá þig í dragi fyrir utan klúbbana,“ segir Ray Milano, flótta­maður frá Venes­ú­ela. Hann varð fyrir árás í heima­landi sínu þegar hann skemmti sem dragdrottn­ingin Crisartista. Ray hafði lagt drag-hæl­ana á hill­una þegar honum bauðst að koma fram með nýjum íslenskum vini sínum, stór­stjörn­unni Páli Óskari Hjálmtýs­syni.

Á veit­inga­stað í miðbæ borg­ar­innar er að hefj­ast drag-dög­urður. Ég mæti tím­an­lega, áður en gestir fara að tín­ast inn og tylli mér við bar­inn. Starfs­fólkið er að klára að raða borðum sem krefst útsjón­ar­semi þar sem von er á fullu húsi. Gest­gjafar dags­ins eru ekki þekktir fyrir að halda sig við sviðið heldur þurfa að geta ferð­ast frjálsir á milli þétt­set­inna borða, dansað, farið í splitt og leikið við gest­ina án þess að rekast í eða slasa sig.

Inn á stað­inn kemur æðandi algjör bomba. Hún er í hvítum kjól með pall­í­ettum og him­in­háum stíg­vélum í stíl sem hún á eftir að dansa í og láta líta út fyrir að sé auð­velt. Hún gengur til mín, bros­andi út í eitt með rauðar rósir í hár­inu. Hún er ein­læg, opin í fasi og biður mig að koma með sér afsíðis svo hún geti sett á sig gervi­neglur fyrir sýn­ing­una. Hvert …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár