Lífsins stærsta undur á spássíum fjárbókhalds

Lífsins stærsta undur á spássíum fjárbókhalds
Dagur Hjart­ar­son.
Bók

Frumbyrjur

Höfundur Dagur Hjartarson
Benedikt
160 blaðsíður
Niðurstaða:

Frumbyrjur hrífur lesandann með kyrrð og ljóðrænni nánd. Hún fjallar um hjú og kú, líf og dauða, ljós og myrkur en fyrst og fremst um smæðina sem verður stór. Þetta „allt í ekkert-inu.“ Hún skilur mann eftir hugsi, ef til vill vegna þess að hún minnir okkur á að orð hafa afleiðingar, þau geta fært okkur nær ljósinu eða dregið okkur nær myrkrinu.

Gefðu umsögn

Það er aðfanga­dagur og hjónin á Köldu­hömrum búa sig undir jóla­haldið. Magga á von á sínu fyrsta barni, rétt eins og kýrin á bænum. Sagan hefur rót­fasta jarð­teng­ingu, hendur í mold, lík­ama og fjár­bók­hald en líka eitt­hvað óáþreif­an­legt, fram­liðna, sýnir og þyngd ósagðra orða. Þetta er brot­hætt saga sem ger­ist ein­hvern tím­ann á síð­ustu öld miðað við það að Guð­mundur og Magga eru síð­asta fólkið í sveit­inni til að fá sér lita­sjón­varp og Guð­mundur sá bíó­mynd­ina Flóttinn frá Alcatraz frá 1979. 

Í sjálfu sér er efnið hvers­dags­legt; hjón í sveit á Vest­fjörðum eiga von á barni en bókin fagnar því sem í smæð sinni verður mik­il­vægt og stórt þegar einu vitnin eru fjöll, myrkur og suð í höfð­inu. 

Um hjú og kú

Bókinni er skipt í þrjá hluta: Kálfur, Draumur og Barn. Í fyrsta hlut­anum togar Guð­mundur líf í heim­inn með fingrum sem hann treystir ekki. Lífið tvö­faldar sig, ein …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár