Mannfjöldaspá boðar mikla fjölgun aðfluttra Íslendinga

Íslend­ingar verða orðnir hálf milljón árið 2042, sam­kvæmt spá Hag­stof­unnar. Þar af fjölgar aðfluttum um 85 þús­und en fæð­ing­ar­tíðni lækkar. Karl­mönnum fjölgar hlut­falls­lega.

Mannfjöldaspá boðar mikla fjölgun aðfluttra Íslendinga
Mann­fjöld­anum við­haldið Í lágri fæð­ing­ar­tíðni getur fólks­fjölgun verið við­haldið með aðfluttu fólki frá öðrum löndum. Mynd: Golli

Á dög­unum greindi Hag­stofan frá því að sam­kvæmt nýrri spá yrðu Íslend­ingar orðnir hálf milljón innan 16 ára, en þeir eru nú um 392 þús­und. Þessari fjölgun er spáð þrátt fyrir að fæð­ing­ar­tíðni hafi fallið hratt síð­ustu ár á Íslandi.

Íslend­ingar, sem fyrir fáum árum skáru sig úr flestum Vest­ur­löndum með hærri fæð­ing­ar­tíðni, eru komnir niður í 1,56 börn á lífaldur hverrar konu. Til þess að við­halda mann­fjöld­anum þurfa að fæð­ast 2,1 barn á hverja konu. Þannig var það til árs­ins 2012, þegar fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi tók að falla ört.

Munurinn liggur í því að lífaldur leng­ist og að Hag­stofan tekur inn í spálíkan sitt að sam­tals 85.100 manns flytji til Íslands, umfram þau sem flytja frá Íslandi, til árs­ins 2042. Það er meira en allir aðfluttir umfram brott­flutta árin 1986 til 2024, sem voru 61 þús­und.

Spáin boðar að á næsta ári muni 5.400 manns flytja til lands­ins umfram …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár