Vegagerðin segir að brú yfir Sundin sé betri en göng

Álit Vega­gerð­ar­innar er að brú yfir Sundin nái frekar mark­miðum um Sunda­braut heldur en göng. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son segir íbúa ósátta. Ásýnd höf­uð­borg­ar­innar breyt­ist ef áform um Sunda­braut verða að veru­leika.

Vegagerðin segir að brú yfir Sundin sé betri en göng
Borgin við Sundin Ljóst er að ásýnd Reykja­víkur breyt­ist tölu­vert sam­hliða styttri ferða­tíma, ef Sunda­braut verður að veru­leika. Mynd: Golli

Vega­gerðin telur að betra sé að fyr­ir­huguð Sunda­braut verði brú heldur en göng, ef tekið er mið af mark­miðum. Verði vilji Vega­gerð­ar­innar að veru­leika mun borgin við Sundin, eins og Reykja­vík er kölluð, liggja við brúuð Sund.

Sunda­braut mun liggja frá Sæbraut að Kjal­ar­nesi og er henni ætlað að létta á umferð á öllum norð­ur­hluta höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og stytta ferða­tíma, fyrir alla ferða­máta. Verk­tím­inn er áætl­aður frá 2026 til 2031, en verk­efnið er ennþá í mats­ferli.

Til athug­unar er að leggja Sunda­braut annað hvort sem brú eða sem göng yfir í Graf­ar­vogs­hverfi, en Vega­gerðin tekur í dag afstöðu gegn göngum.

„Jarðgöng ná síður að upp­fylla öll þau mark­mið sem sett hafa verið sem leið­ar­ljós und­ir­bún­ings fram­kvæmd­ar­innar,“ segir í umfjöllun Vega­gerð­ar­innar.

Áhrifa­svæði Sunda­brautarLjóst er að brú mun setja mark sitt á ásýnd borg­ar­innar. Aðeins er til skoð­unar að bora göng frá Sæbraut við Sunda­höfn yfir í Gufunes, en ann­ars staðar verður brúað og þverað með fyll­ingum.

Göngin á 80 metra dýpi

„Kostir jarð­ganga­lausn­ar­innar eru að áhrif ásýndar eru minni og þau við­halda betri sam­fellu milli byggðar í Graf­ar­vogi. Einnig verða íbúar næst braut­inni fyrir minni áhrifum þar sem umferðin er neð­an­jarðar,“ segir í  umsögn Vega­gerð­ar­innar, en um leið er bent á gall­ana. „Ganga­munnar þurfa mikið rými, sem tak­markar mögu­leika á að tengja þá fyr­ir­liggj­andi mann­virkjum. Til þess að tryggja öryggi jarð­ganga þurfa þau að vera um 40 metrum undir föstum sjáv­ar­botni. Sunda­göng undir Klepps­vík yrðu því á um 80 metra dýpi undir sjáv­ar­máli þar sem þau fara dýpst. Til þess að tryggja öryggi veg­far­enda mega jarð­göng ekki vera of brött, m.a. vegna bruna­hættu. Fyrir hverja 20 metra sem niður er farið lengj­ast göngin því um að lág­marki 400 m í báða enda miðað við lárétt yfir­borð,“ segir Vega­gerðin.

Brú munu hins vegar bjóða upp á mis­mun­andi far­ar­máta, það er að segja göngu og hjól­reiðar. 

„Sunda­brúin gerir ráð fyrir styttri og beinni teng­ingum við hverfið og býður þannig upp á fleiri aðkomu­leiðir að Sunda­braut­inni. Með þessu stytt­ist ferða­tími Graf­ar­vogs­búa og dregur úr umferð innan hverf­is­ins, sam­an­borið við jarð­ganga­kost­inn. Þá mun brú­ar­lausnin létta meira á umferð um Gull­in­brú en jarð­göng myndu gera, sam­kvæmt grein­ingum, og þar af leið­andi fremur létta á umferð á Höfða­bakka en jarð­göng.“

Kynningarfundir framundan

 Í fram­tíð­ar­sýn Vega­gerð­ar­innar er gert ráð fyrir að Reykja­nes­braut, Sæbraut og Sunda­braut myndi saman „skil­virkt og vel tengt stofn­vega­kerfi sem tryggi gott umferð­ar­flæði um meg­in­leiðir höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins“. Sunda­braut verður stofn­vegur sem tengir Norð­ur­land og Vest­ur­land við höf­uð­borg­ar­svæðið.

Und­ir­bún­ingur miðar að því að verk­efnið verði boðið út sem sam­vinnu­verk­efni og fjár­magnað með gjald­töku af umferð.

Í und­ir­bún­ingi eru opnir kynn­ing­ar­fundir vegna vænt­an­legrar umhverf­is­mats­skýrslu vegna Sunda­brautar í Reykja­vík, Mos­fellsbæ og á Akranesi, auk þess sem drög að aðal­skipu­lags­breyt­ingum í Reykja­vík verða kynnt. Gert er ráð fyrir að umhverf­is­mats­skýrslan verði birt í sam­ráðs­gátt Skipu­lags­stofn­unar í næstu viku.

Sunda­brautÍbúar í Graf­ar­vogi hafa lýst óánægju.

Guðlaugur Þór gagnrýnir Sundabraut

Umfjöllun Vega­gerð­ar­innar kemur í kjöl­far þess að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, alþing­is­maður úr Graf­ar­vogi, segir í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í dag að eðli­legt sé að skoða að grafa Sunda­göng, frekar en að brúa. Vega­lengd yfir í Graf­ar­vog og alla leið í Mos­fellsbæ yrði ígildi fer­faldra Hval­fjarð­ar­ganga.

Guð­laugur segir í sam­talið við Morg­un­blaðið að Sunda­braut muni klippa Graf­ar­vogs­hverfið í sundur. „Viðbrögð fólks í þessum hverfum við Sunda­braut eins og hún er hugsuð nú hafa verið mjög nei­kvæð. Það vilja þó allir teng­ing­una en margir hafa áhyggjur af útfærsl­unni,“ segir hann.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Ég hélt að ,,Vegagerðin" væri hluti af þeim sem skipulögðu gatnaframkvæmdir við Sundabraut, og hef heyrt oft um þeirra hlut ? En, eru komnir nýjar persónur með allt aðra hugsun , sem þeir sem voru búnir að skipuleggja hvað væri best að gera ? Eða, er þetta bara sérhagsmunapólitík ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár