Guðfaðir plokksins: „Þú brennir meira með því að plokka en skokka“

„Þetta er ekki ruslið þitt en þetta er plánetan okkar,“ segir Erik Ahlström, guð­faðir plokks­ins. Ekki bara felst heilsu­bót í plokk­inu heldur segir Erik það líka gott fyrir umhverfið og kom­andi kyn­slóðir. Hann telur mik­il­vægt fyrir sjáv­ar­þjóð eins og Ísland að koma í veg fyrir að rusl fari í sjó­inn en 85 pró­sent þess kemur frá landi. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar fylgdi Erik út að plokka.

Guðfaðir plokksins: „Þú brennir meira með því að plokka en skokka“
Erik Ahlström Hvetur fólk til að tína upp eitt rusl á dag. Mynd: Víkingur

„Þetta er ekki ruslið þitt en þetta er plánetan okkar,“ segir Erik Ahlström, guð­faðir plokks­ins. Hann stofn­aði Plogga-hreyf­ing­una í Stokk­hólmi árið 2016 sem sam­einar lík­ams­rækt og umhverf­isá­tak. Hreyfing er nú starf­rækt í um níu­tíu löndum um allan heim. 

Heim­ildin ræddi við Erik en það fyrsta sem hann gerði þegar blaða­maður hitti hann var að henda rusli sem hann hafði tínt upp af göt­unni við bíla­stæðið á leið­inni inn í bygg­ing­una. Aðspurður hvort hann sé alltaf með­vit­aður um ruslið jánkar hann. „Þetta er eins og þegar fólk byrjar að tína sveppi, það sér þá alls staðar. Ég sé ruslið alls staðar,“ svarar hann bros­andi. 

Blaða­maður fylgdi Erik síðar út að plokka en það kom nokkuð á óvart hversu mikið af smáu rusli var að finna þegar sjónum var beint að því: Sígar­ettu­stubbar, nikótín­púðar, lítil plast­stykki og ýmis­legt fleira. „Eins og sveppir,“ end­ur­tók Erik og hóf að safna rusli í …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár