Tæland gerir loftárásir á kambódíska herinn

Löndin tvö deila á Smar­agðs­þrí­hyrn­ingnum sem geymir forn must­eri.

Tæland gerir loftárásir á kambódíska herinn
Kam­bódískir her­menn Hér sjást her­menn úr kam­bódíska hernum hlaða BM-21 fjöl­virka sprengju­vörpu í Preah Vihear-hér­að­inu. Upp­lýs­inga­óreiða ríkir um hvernig átökin komu til. Mynd: AFP

Tæland gerði loft­árásir á hern­að­ar­leg skot­mörk í Kambódíu í nótt eftir að Kambódía skaut eld­flaugum og stór­skota­liði og drap að minnsta kosti 11 óbreytta borg­ara. Þetta markar dramat­íska stig­mögnun í langvar­andi landamæra­deilu ríkj­anna tveggja.

Ríkin hafa lengi átt í hat­rammri deilu um svæði sem kall­ast Smar­agðs­þrí­hyrn­ing­ur­inn, þar sem mörk Tælands, Kambódíu og Laos mæt­ast og þar sem finna má mörg forn must­eri.

Deilan hefur staðið yfir í ára­tugi, bloss­aði upp í blóðug hern­að­ar­á­tök fyrir rúmum 15 árum og aftur í maí síð­ast­liðnum þegar kam­bódískur her­maður féll í skot­bar­daga.

Á fimmtu­dag blossuðu átökin aftur upp þegar Kambódía skaut eld­flaugum og sprengjum yfir í Tæland og tælenski her­inn brást við með því að senda F-16 her­þotur í loft­árásir.

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Tælands greindi frá því að að minnsta kosti 11 óbreyttir borg­arar hefðu látið lífið, flestir í eld­flauga­árás nálægt bens­ín­stöð í Sisaket-hér­aði.

Upptökur frá vett­vangi sýndu reyk stíga …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Donni Gislason skrifaði
    Það er skrifað Taíland en ekki Tæland.
    Eins og Taívan en ekki tævan.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár