Alvarleg slys erf­ið­ust Hér eru starfs­menn bráða­mót­tök­unnar að sinna sjúk­lingum í 3 af 4 bráða­stæðum í einu. Jóhönnu félags­ráð­gjafa finnst erf­ið­ast við starfið að takast á við óvænt dauðs­föll, alvar­leg slys eða þegar hún tekur á móti ein­hverjum sem hún þekkir sem er í alvar­legu ástandi. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans starfar Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir félags­ráð­gjafi. Hennar hlut­verk er annað en flestra sem þar starfa. „Læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar sinna þessu lík­am­lega en við komum inn með félags­lega þátt­inn, sem hefur einnig rosa­lega mikil áhrif á líðan fólks,“ útskýrir Jóhanna. 

Rétt eins og starf ann­arra stétta á deild­inni er starf félags­ráð­gjafa á bráða­mót­tök­unni óút­reikn­an­legt, enda er þar eng­inn dagur eins. Jóhanna segir sveigj­an­leika mik­il­vægan. „Okkar hlut­verk er að aðstoða við flæðið, hjálpa til við útskriftir á fólki sem er okkar fólk, innan gæsalappa,“ segir hún. „Við tökum á móti öllum sem eru með ein­hvers konar vímu­efna­vanda. Við leið­beinum aðstand­endum og tökum á móti þeim þegar um er að ræða stór áföll. Við hjálpum til við útskriftir á ósjúkra­tryggðum. Við tökum á móti fólki sem glímir við and­lega van­líðan líka, það er okkar hlut­verk.“ 

Andleg vanlíðan oft fylgifiskur

Verkefni félags­ráð­gjafa á bráða­mót­tök­unni tengj­ast oft­ast and­legri heilsu sjúk­linga, …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár