Ofbeldi notað til að halda konum í skefjum

Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, seg­ir þekkt að of­beldi sé beitt til að halda aft­ur af kon­um. Sjálf hafi hún þurft að leita til lög­reglu vegna hót­ana sem að henni beind­ust sem konu í valda­stöðu. Hún seg­ir gott að geta sýnt heim­in­um hve marg­ar kon­ur séu nú á sama tíma við völd á Ís­landi.

Heiða Björg Hilmisdóttir tók við lyklavöldum í ráðhúsi Reykjavíkur 21. febrúar síðastliðinn, hálfum mánuði eftir að Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn, sleit meirihlutasamstarfinu. Heiða hefur starfað í borgarstjórn fyrir Samfylkinguna í ellefu ár en hún kom fyrst inn sem varaborgarfulltrúi árið 2014. Tæpu ári síðar tók hún sæti sem borgarfulltrúi.

Heiða Björg, sem mætti í myndatöku til Golla, ljósmyndara Heimildarinnar, í Þjóðmenningarhúsið á dögunum ásamt forseta Íslands, forsætisráðherra og biskupi, segir að vegna bakslagsins sem orðið hafi í jafnréttismálum víða um heim sé afar mikilvægt hve margar konur séu nú við völd á Íslandi.

 „Ég get nefnt konurnar sem ég var með í dag sem allar gegna sínum störfum af fagmennsku. Ég vona að almenningur átti sig á, þó að það séu alls konar straumar úti í heimi þar sem verið er að tala niður konur, tala niður hinsegin fólk og tala niður alls konar þjóðfélagshópa, að við þurfum …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IS
    Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Á sama tíma hjá Heiðu 13 konur vs 1 karl í pólitísku embætti.
    Heiða, komin með valdið, gerir að vissu leiti það sama og hún gagnrýnir, sýnir dómínans. Er það ekki ofbeldi? Hún neitar að leiðrétta þannig að samræmist mannréttindastefnu RVK kafla 2.1, um 40% lágmarkshlutfall kyns.

    Heiða ber fyrir sig óskildum þáttum til að verja að konur séu með formennsku í 9 af 10 nefndum, með borgarstjóra, forseta borgarstjórnar og formann borgarráðs. Og ber fyrir sig að íbúar hafi kosið fulltrúa og nú séu konur í meirihluta í fyrsta sinn (leiðtogalega séð já). Íbúar kusu hvergi í viðkomandi stöður. Og þó konur séu í forsvari fyrir stjórnmálaflokka, af hverju á það að víkja mannréttindastefnunni til hliðar?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Konur til valda

Women in Power: “The Barriers are Breaking Down”
ÚttektKonur til valda

Women in Power: “The Barriers are Break­ing Down”

The Presi­dent, Prime Mini­ster, For­eign Mini­ster, Mini­ster of Justice, Mini­ster of Social Affairs and Hous­ing, Mini­ster of Indus­try, Mini­ster of Health, Spea­ker of Al­þingi, Parlia­ment­ary Ombudsm­an, Mayor of Reykja­vík, Bis­hop, Rector, Attorney Gener­al, Director of Pu­blic Prosecuti­ons, Nati­onal Comm­issi­oner of the Icelandic Police, Police Comm­issi­oner in the Capital Reg­i­on, Director of Health and Ombudsm­an for Children: In the Ye­ar of Women 2025, it became historic news that all these positi­ons are held by women.
Konur til valda: „Allar hömlur eru að bresta“
ÚttektKonur til valda

Kon­ur til valda: „All­ar höml­ur eru að bresta“

For­seti, for­sæt­is­ráð­herra, ut­an­rík­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, fé­lags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, at­vinnu­vega­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra, for­seti Al­þing­is, um­boðs­mað­ur Al­þing­is, borg­ar­stjóri, bisk­up, rektor, rík­is­lög­mað­ur, rík­is­sak­sókn­ari, rík­is­lög­reglu­stjóri, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, land­lækn­ir og um­boðs­mað­ur barna: Kvenna­ár­ið 2025 urðu þau sögu­legu tíð­indi að all­ar þess­ar stöð­ur eru skip­að­ar kon­um.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár