„Í stríði eru lögin þögul“

Íslands­meist­ari í lög­mennsku er Ragnar Aðal­steins­son, í þeim skiln­ingi að Ragnar flutti mál fyrir Hæsta­rétti í meira en 54 ár og þar með lengst allra. Senni­lega hefur eng­inn ein­stak­lingur hér á landi haft jafn­mikil áhrif á þróun mann­rétt­inda og hann. Hér er farið í saumana á merku lífs­starfi Ragnars.

„Í stríði eru lögin þögul“

Tíu ára vann Ragnar sér inn fyrsta launatékk­ann og eftir það hætti hann bara ekki að vinna. Ragnar fædd­ist 13. júní 1935 og er alinn upp í Vest­ur­bænum. Eftir MR vann hann á tog­ara á Græn­lands­miðum en árið 1956 sett­ist hann að í þorpi við Mið­jarð­ar­hafið en þá hafði hann dvalið í Madríd; á Spáni nam hann spænsku. Hann fékk rétt­indi til mál­flutn­ings í hér­aði 1962 og 1966 fékk hann rétt­indi til að flytja mál fyrir Hæsta­rétti. Sjö börnum og ótal barna­börnum síðar hefur honum tek­ist að umbylta skiln­ingi sam­fé­lags­ins á mann­rétt­indum. Hvernig í and­skot­anum fór hann að því? 

Kannski var mót­andi augna­blik þegar hvít­liðar réð­ust með kylfum á almenn­ing á Ast­ur­velli, þegar inn­göng­unni í NATO var mót­mælt 30. mars 1949.

„Þegar ég var tæp­lega 14 ára fór ég á fund sem Sós­í­alistar héldu í Mið­bæj­ar­skóla­port­inu – þó ég væri ekki hluti af þeirri hreyf­ingu. Síðan fór ég …

Kjósa
56
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IB
    Ingimundur Bergmann skrifaði
    Áhugaverð grein sem ég ætla að varðveita hjá mér. Takk fyrir.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár