Pólitískustu hagræðingartillögur almennings teknar út

Í til­lögum starfs­hóps um hag­ræð­ingu í rík­is­rekstri er ekki að finna þær hug­myndir frá almenn­ingi sem mættu telj­ast hápóli­tískar. En til dæmis stungu fjöl­margir lands­menn upp á því í sam­ráðs­gátt stjórn­valda að fækka póli­tískum aðstoð­ar­mönnum og hætta rekstri RÚV og ÁTVR.

Pólitískustu hagræðingartillögur almennings teknar út
Sam­göngur Fjöldi Íslend­inga stakk upp á því í sam­ráðs­gátt að hætta við Borg­ar­línu­verk­efnið, hug­myndin virð­ist þó ekki hafa fengið braut­ar­gengi. Mynd: Golli

Starfs­hópur um hag­ræð­ingu í rík­is­rekstri skil­aði í vik­unni sex­tíu til­lögum til rík­is­stjórn­ar­innar. Þær voru unnar upp úr næstum fjögur þús­und umsögnum frá almenn­ingi og erindum frá for­stöðu­mönnum rík­is­stofn­ana og ráðu­neyta.

Upp­safnað hag­ræði þeirra til­lagna sem hafa verið metnar er rúm­lega 71 millj­arður króna árin 2026–2030. Þó eru margar til­lögur sem ekki hafa verið kostn­að­ar­metnar og því tal­inn mögu­leiki á enn frek­ari hag­ræð­ingu en þessi tala segir til um.

Til­lög­urnar spanna allt frá því að hætta prentun þing­skjala Alþingis – áætl­aður sparn­aður er 100 millj­ónir króna – upp í það að stofna eitt sýslu­manns­emb­ætti sem gæti sam­ein­ast Þjóðskrá og Útlend­inga­stofnun. 

Hópurinn stingur upp á sam­ein­ingu ýmissa stofn­ana svo sem lög­reglu­emb­ætta, hér­aðs­dóm­stóla, haf­tengdra stofn­ana og opin­berra háskóla. Þá eru lagðar til tals­verðar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi Hæsta­réttar. Til dæmis því að fækka dóm­urum við rétt­inn úr sjö niður í fimm og að leggja niður sér­kjör þeirra við starfs­lok. En ákvæði í stjórn­ar­skrá hefur það í för með sér að hæsta­rétt­ar­dóm­arar njóta fullra launa út ævina við starfs­lok. 

Stungið upp á sölu RÚV og banka

Ljóst er af þeim til­lögum sem gerðar voru opin­berar í sam­ráðs­gátt­inni að margir lands­menn höfðu svip­aðar hug­myndir um mögu­legar hag­ræð­ingar í rík­is­rekstr­inum. Til dæmis stakk mik­ill fjöldi manns upp á því að fækka póli­tísku aðstoð­ar­fólki, því að hætta við Borg­ar­línu­verk­efnið, skera niður lista­manna­laun og selja fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins. Voru RÚV, ÁTVR og hlutur rík­is­ins í Íslands­banka meðal ann­ars nefnd í því sam­hengi.

Á fjöl­miðla­fund­inum þar sem til­lög­urnar voru kynntar tók Björn Ingi Victorsson, for­maður hag­ræð­ing­ar­hóps­ins, til máls og útskýrði að engar til­lögur hóps­ins sner­ust um til­færslu­kerfin eða hápóli­tísk verk­efni. „Fjöldi til­lagna sneri að póli­tískum úrlausn­ar­efnum. Sem eru úrlausn­ar­efni þessa fólks hérna en ekki okkar,“ sagði Björn Ingi og benti á for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra. „Þess vegna eru til dæmis ekki teknar margar rót­tækar breyt­ingar á ÁTVR og RÚV.“

Þá nefndi hann að fjöld­inn allur af til­lögum hefðu borist frá almenn­ingi um að hætta með ráð­herra­bíla, fækka póli­tískum aðstoð­ar­mönnum, sendi­ráðum og ferðum erlendis. „Þetta var allt skoðað í hópnum og að sjálf­sögðu tekið til greina en hóp­ur­inn setur ekki fram til­lögu um þessi efni.“

Vill afnám handhafalauna vegna forsetavalds

Spurð út í póli­tísku til­lög­urnar sem starfs­hóp­ur­inn tók ekki afstöðu til sagði Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að auð­vitað væri ýmis­legt á borð­inu þótt það kæmi ekki fram í þessu skjali. „Þótt það sé 100 pró­sent rétt sem for­maður hóps­ins segir að svona kannski póli­tísk­ustu þætt­irnir voru teknir út þá er auð­vitað heil­mikil póli­tík líka í því sem er í þessu skjali. Það er póli­tík í því að fara að sam­eina stofn­anir, að fara í breytt skipu­lag nefnda og annað. Lífið er póli­tískt.“

Þá benti Kristrún á að til­lögum skjals­ins yrði ekki hrint í fram­kvæmd í næsta mán­uði án sam­tals, þótt sumum þeirra væri hægt að fram­fylgja nokkuð auð­veld­lega.  

Margar til­lögur hóps­ins eru að sögn for­sæt­is­ráð­herra nú þegar í far­vegi. Til dæmis inn­leið­ing stöð­ug­leik­a­reglu, sam­ein­ing sjóða, bætt fjár­fest­ing­ar­um­gjörð rík­is­ins og fækkun hæfn­is­nefnda. Þá vill Kristrún strax leggja fram til­lögu um afnám hand­haf­a­launa vegna for­seta­valds.

Kristrún nefndi á fjöl­miðla­fund­inum sér­stak­lega til­lög­una um sam­ein­ingu lög­reglu­emb­ætta, til­lögu um hag­ræð­ingu í opin­berum inn­kaupum og sam­ein­ingu neyt­enda­verndar og mark­aðs­yf­ir­lits. Má því draga þá ályktun að henni þyki álit­legt að ráð­ast í þær breyt­ingar.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Ósköp var þetta stutt "úttekt" maður er engu nær.
    0
  • ÖS
    Örn Sigurðsson skrifaði
    Lagt var til að 80 ára gamall herflugvöllur Breta í Vatnsmýri verði lagður niður og í hans stað reist mannvæn, þétt og skilvirk ný miðborgarbyggð fyrir 60.000 íbúa og störf. Ábatinn fyrir þjóðarhag og almannaheill á 2-3 áratugum yrði eiginlega ólýsanlegur, amk. virði nokkura þúsunda milljarða.
    3
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Væri fróðlegt að fá fram þær ,,pólitísku" tillögur sem nefndin treysti sér ekki til að fjalla um. Ekki ólíklegt að mesta kjötið sé á þeim beinum. RÚV og ÁTVR eru væntanlega ekki stærstu bitarnir þar. Læt mér detta í hug málaflokka eins og heilbrigðismál og landbúnað.
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það er ótrúlegt að enn skuli ekki vera búið að stöðva smásölu á áfengi annarra en ÁTVR. Það kemur skýrt fram í lögum að aðeins ÁTVR hafi slíka heimild. Netsala er heimil þannig að hver sem er, bæði einstaklingar og fyrirtæki, geta keypt áfengi erlendis frá en lög banna að áfengið sé selt áfram í smásölu. Það er langsótt túlkun að kalla slíka smásölu netsölu.
    6
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Látið Ríkisútvarpið í friði. Áfengi á aðeins að selja á vegum Ríkisins, en ekki annara.
    Einkaaðilar hafa engan rétt á hvorugu, eins og margir vilja vera láta.
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár