Foreldrar vinna á leikskóla til að brúa bilið
Í leik­skóla er gaman Vil­hjálmur Þór Svansson lög­fræð­ingur, Gunn­hildur Gunn­ars­dóttir sál­fræð­ingur, Auður Ólafs­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur og Arnar Dan Krist­jáns­son leik­ari tryggðu börnum sínum pláss á leik­skóla með því að hefja þar störf. Það er lausn, en engin töfra­lausn, að sögn leik­skóla­stjóra. Mynd: Golli

Foreldrar vinna á leikskóla til að brúa bilið

Veru­leiki barna­fjöl­skyldna í Reykja­vík ein­kenn­ist af því að börn eru orðin alltof gömul til að telja aldur í mán­uðum þegar þau loks kom­ast inn á leik­skóla. Árum saman hefur öllum 12 mán­aða gömlum börnum verið lofað leik­skóla­plássi en raunin er að mán­uði barna sem fá pláss er hægt að telja í tugum. For­eldrar hafa gripið til sinna ráða, meðal ann­ars með því að starfa á leik­skóla til að fá for­gang að leik­skóla­plássi.

Sál­fræð­ingur, hjúkr­un­ar­fræð­ingur, leik­ari og lög­fræð­ingur. Allt eru þetta starfs­heiti for­eldra sem hafa lagt fer­il­inn á hill­una, að minnsta kosti um sinn, og hafið störf á leik­skóla. Ástæðan er ein­föld: Að tryggja barni sínu leik­skóla­pláss. Sögur þess­ara leik­skóla­starfs­manna, og fjöl­skyldna þeirra, má finna í Heim­ild­inni í dag, sem og við­tal við Halldóru Guð­munds­dóttur, leik­skóla­stjóra á Drafn­ar­steini. 

Halldóra hefur starfað á sama leik­skól­anum alla sína starfsævi, ald­ar­fjórð­ung, og hefur tek­ist á við ótal krefj­andi verk­efni, allt frá verk­föllum til heims­far­ald­urs. Það eru tíma­bundin verk­efni en við­var­andi verk­efni er mann­ekla. Í orða­forða leik­skóla­stjór­ans má meðal ann­ars finna orð eins og „mann­eklu­haust“ og Halldóra talar um starfs­fólkið sitt sem „stað­fugla“ og „far­fugla“. „Stað­fugl­arnir eru fólk með góða reynslu og menntun sem starfar lengi en far­fugl­arnir eru til dæmis ungt fólk sem er að taka sér hlé frá námi eða er ekki búið að ákveða hvað það ætlar að verða þegar það verður stórt. En um leið og far­fugl­arnir verða fleiri en stað­fugl­arnir þá er maður í vanda,“ segir Halldóra í við­tali við Heim­ild­ina. For­eldrar sem hefja störf á leik­skólum til að tryggja börnum sínum leik­skóla­pláss eru far­fuglar. Það er engin töfra­lausn, þetta er úrræði sem hefur verið lengi til staðar en hefur færst í auk­ana síð­ustu ár. 

Á leik­skóla í ald­ar­fjórð­ungHall­dóra Guð­munds­dótt­ir, leik­skóla­stjóri á Drafnar­steini, seg­ir það enga töfra­lausn að for­eldr­ar ráði sig til starfa á leik­skól­um til að tryggja börn­um sín­um leik­skóla­pláss.

Í reglum um leik­skóla­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar segir að starfs­maður leik­skóla geti sótt um for­gang að leik­skólum borg­ar­innar, svo lengi sem lög­heim­ili starfs­manns er í Reykja­vík og þarf starfs­mað­ur­inn að vera að lág­marki í 50 pró­sent starfs­hlut­falli. Þar segir einnig að ef starfs­maður hættir störfum eftir að hafa starfað í 12 mán­uði eða færri sé „ekki unnt að tryggja að starfs­maður haldi leik­skóla­plássi fyrir barn sitt“. Und­an­tekn­ing virð­ist þó vera gerð á þeirri reglu en Vil­hjálmur Þór Svansson lög­fræð­ingur gerði til að mynda sex mán­aða ráðn­ing­ar­samn­ing við leik­skóla dóttur sinnar. Hann lítur á þetta sem tíma­bundið ástand en sér jákvæðar hliðar á fyr­ir­komu­lag­inu. „Ég held að þetta sé hollt og gott að fara aðeins út fyrir sinn sér­fræðiramma tíma­bundið,“ segir hann í sam­tali við Heim­ild­ina. Arnar Dan Krist­jáns­son leik­ari lítur öðrum augun á leik­skóla­starfið, en hann hóf störf á Drafn­ar­steini til að koma dóttur sinni að. Hann lítur ekki á það sem fórn að starfa á leik­skóla. „Mér finnst það mikil gjöf fyrir mig að hafa fengið inn­sýn inn í þetta starf og þennan heim,“ segir Arnar. 

Áhrif á jafnrétti kynjanna og samfélagið í heild

Í ágúst kvaddi Gunn­hildur Gunn­ars­dóttir sál­fræð­ingur leik­skól­ann Steina­hlíð sem hún hafði starfað á frá því í jan­úar 2024. „Bilið á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla leng­ist og bilið á milli jafn­rétti kynj­anna eykst en konur eru lík­legri til þess að vera lengur frá vinnu­mark­aði vegna skorts á dag­vistar­úr­ræðum fyrir börnin,“ segir Gunn­hildur, sem fór að vinna á leik­skóla til að koma syn­inum að. Maðurinn hennar er flug­maður og það reynd­ist flókn­ara fyrir hann að gera hlé á sínum störfum.

Það er í takt við nið­ur­stöðu skýrslu frá inn­við­a­ráð­herra frá því í ágúst 2024 um kostnað for­eldra við að brúa bilið frá fæð­ing­ar­or­lofi fram að dag­vistun. Þar segir ein­fald­lega: „Engum vafa er und­ir­orpið að áhrif bils á milli fæð­ing­ar­or­lofs­réttar for­eldra og þar til barni býðst dag­vistun á leik­skóla á jafn­rétti eru umtals­verð.“ Áhrifin birt­ast einna helst í tekju­lækkun. Samkvæmt rann­sókn á vegum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins á tekju­breyt­ingu kynj­anna í kringum fæð­ingu barna á árunum 2013–2022 kemur fram að  ráð­stöf­un­ar­tekjur kvenna hafi lækkað að með­al­tali um 30–40 pró­sent á fyrsta heila árinu eftir fæð­ingu barns. Á sama tíma hafi ráð­stöf­un­ar­tekjur karla lækkað um 3–5 pró­sent.

Sam­fé­lags­leg áhrif þess að for­eldrar hverfi frá störfum sínum og til leik­skól­anna eru við­mæl­endum Heim­ild­ar­innar einnig hug­leikin. Auður Ólafs­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er í tíma­bundnu leyfi frá bráða­mót­töku Land­spít­al­ans á meðan hún starfar á leik­skóla sona sinna. „Ég er búin að vinna á bráða­mót­tök­unni í 8 ár, ég fór að hugsa: Hver er ég ef ég vinn ekki þarna? Hvað stend ég fyrir? En svo ákvað ég að breyta hug­ar­far­inu,“ segir Auður, sem lítur á starfið sem tæki­færi til að vera í hefð­bund­inni fjöl­skyldurútínu. „Prófa að vera heima hjá mér, sof­andi á næt­urnar, ekki vinn­andi, prófa að fá jóla­frí og helg­ar­frí.“  

Stóri úthlutunardagurinn

1117
börn
eru á biðlista sem verða 18 mán­aða eða eldri 1. sept­em­ber nk.

Vil­hjálmur, Arnar, Gunn­hildur og Auður tryggðu börnum sínum pláss með þessum hætti en eftir stendur að biðlisti á leik­skóla borg­ar­innar hleypur enn á hund­ruðum barna. Biðlist­inn tók þó breyt­ingum í vik­unni á „stóra úthlut­un­ar­deg­inum“ þann 3. mars. Á meðan sumir for­eldrar fögn­uðu lang­þráðu leik­skóla­plássi upp­lifðu aðrir von­brigði og óvissu. Óvissu­á­stand er orðið hluti af hvers­deg­inum hjá for­eldrum sem eiga börn sem föst eru í bil­inu á milli fæð­ing­ar­or­lofs og dag­vist­unar. Leik­skóla­vand­inn er ekki nýr af nál­inni, það eru allir með­vit­aðir um. Aðgerða­á­ætl­unin „Brúum bilið“  var sam­þykkt af borg­ar­stjórn í nóv­em­ber 2018, fyrir sjö árum, áætlun sem miðar að því að fjölga leik­skóla­plássum. 

BiðlistiStaðan á biðlista eftir leik­skóla­plássi í Reykja­vík í upp­hafi árs.
1566
leik­skóla­pláss
eru að losna vegna barna sem byrja í grunn­skóla í haust.

Fimm árum eftir að áætl­unin var sam­þykkt eru biðlistar eftir leik­skóla­plássi þétt skip­aðir og fjöldi leik­skóla er óstarf­hæfur, en í upp­hafi síð­asta skóla­árs voru níu leik­skólar lok­aðir eða með skerta starf­semi vegna myglu. Starf­semi leik­skól­anna fær­ist á aðrar starfs­stöðvar, einkum nýja leik­skóla, sem hefur til­heyr­andi áhrif á hreyf­ingu biðlista. Samkvæmt aðgerða­á­ætl­un­inni munu tíu nýir leik­skólar og fjórar svo­kall­aðar Ævin­týra­borgir taka til starfa víðs vegar um borg­ina til árs­ins 2026 en dæmi eru um að starf­semi leik­skóla sem hefur þurft að loka vegna myglu hafi færst yfir í nýja leik­skóla. 

Í sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu Sam­fylk­ingar, Pírata, Sós­í­alista­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Vinstri grænna, um lífs­gæði í Reykja­vík, sem und­ir­rituð var við myndun nýs meiri­hluta í borg­inni í lok febr­úar, eru „börn og fjöl­skyldur þeirra“ á meðal for­gangs­mála. Nýr meiri­hluti vill þannig bæta starfs­að­stæður og vinnu­um­hverfi í leik- og grunn­skólum í sam­vinnu við starfs­fólk og fjölga á „leik­skóla­plássum veru­lega með opnun nýrra leik­skóla og stækkun eldri leik­skóla án þess að taka skref í átt að fyr­ir­tækja­væð­ingu“. 

Sam­starfs­flokk­arnir í nýmynd­uðum meiri­hluta í borg­inni birtu aðgerða­á­ætlun í vik­unni þar sem segir að flokk­arnir muni „leita allra leiða til að fjölga plássum í leik­skólum“. Meðal til­lagna er að fela skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara að setja saman sprett­hóp kjör­inna full­trúa sem yfir­fer nið­ur­stöður stýri­hóps­ins „Brúum bilið“ og vinnur á þeim grund­velli að kostn­að­ar­meta og tíma­setja áætlun um fjölgun leik­skóla­plássa í Reykja­vík.

Pólitískar kreddur?

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, segir það von­brigði að nýr meiri­hluti í borg­inni stefni ekki á að veita fyr­ir­tækjum leyfi til að opna leik­skóla í Reykja­vík, nokkuð sem Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi  borg­ar­stjóri og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í borg­inni, hefur talað fyrir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagði fram til­lögu á fundi borg­ar­stjórnar í vik­unni að borgin myndi styðja við vinnu­staði sem vilja opna leik­skóla eða dag­gæslu en til­lagan var felld. Einar sagði í sam­tali við mbl.is í vik­unni að það væri sorg­legt að „póli­tískar kreddur“ ráði för í ákvörðun meiri­hlut­ans sem sé á móti einka­fram­taki. Á þessu sé ljóst að leik­skóla­mál í Reykja­vík­ur­borg muni áfram ein­kenn­ast af póli­tík frekar en raun­veru­legum lausnum.

Á meðan munu for­eldrar leik­skóla­barna halda áfram að grípa til allra ráða, meðal ann­ars að starfa á leik­skólum barna sinna.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Í leikskóla er álag

Hélt að hún myndi höndla álagið betur
ViðtalÍ leikskóla er álag

Hélt að hún myndi höndla álagið betur

Að vinna með börnum er það skemmti­leg­asta sem Gunn­hildur Gunn­ars­dóttir barna­sál­fræð­ingur gerir. Þegar hún tók að sér tíma­bundið starf á leik­skóla til að tryggja syni sínum leik­skóla­pláss hélt hún að hún myndi höndla álagið en það kom henni á óvart hversu krefj­andi starfs­um­hverfið er. „Stundum þegar ég kom heim eftir langan dag vildi ég bara að eng­inn tal­aði við mig, ég var svo ótrú­lega þreytt.“
Leitar að framtíðarstarfsfólki á leikskóla:  „Við erum alltaf að gefa afslátt“
ViðtalÍ leikskóla er álag

Leitar að fram­tíð­ar­starfs­fólki á leik­skóla: „Við erum alltaf að gefa afslátt“

Halldóra Guð­munds­dóttir, leik­skóla­stjóri á Drafn­ar­steini, segir það enga töfra­lausn að for­eldrar ráði sig tíma­bundið til starfa á leik­skólum til að tryggja börnum sínum leik­skóla­pláss. Þetta sé hins vegar úrræði sem hafi verið lengi til staðar en hefur færst í auk­ana síð­ustu ár. Far­fugl­arnir mega ekki verða fleiri en stað­fugl­arnir.
Frá endurlífgun á bráðamóttökunni í umönnun leikskólabarna
ViðtalÍ leikskóla er álag

Frá end­ur­lífgun á bráða­mót­tök­unni í umönnun leik­skóla­barna

Líf Auðar Ólafs­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ings og fjöl­skyldu tók stakka­skiptum síð­asta haust þegar hún sagði skilið við Bráða­mót­töku Land­spít­al­ans eftir átta ára starf og hóf störf á leik­skóla barn­anna sinna til að koma yngra barn­inu inn á leik­skóla. „Ég fór úr því að vera í end­ur­lífgun einn dag­inn yfir í að syngja Kalli litli kónguló hinn dag­inn.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár