„Ég ætla að nýta þetta tækifæri vel“

Það var ekki í kort­unum að Heiða Björg Hilm­is­dóttir yrði borg­ar­stjóri en á innan við viku mynd­aði hún nýjan meiri­hluta vinstri­flokka í Reykja­vík­ur­borg og skrif­aði undir kjara­samn­ing við kenn­ara sem for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga eftir langa deilu og verk­föll. Hún seg­ist góð í póli­tík og brenna fyrir því að gera borg­ina betri, sem vel sé hægt á þeim fimmtán mán­uðum sem hún hefur fram að kosn­ingum.

„Ég ætla að nýta þetta tækifæri vel“

„Þetta er dásam­leg borg. Ég elska að búa í Reykja­vík. Og að fá að taka þátt í að sjá borg­ina þró­ast og mann­lífið breyt­ast, þetta er bara dásam­legt,“ segir Heiða Björg Hilm­is­dóttir, nýkjörin borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Borg­ar­stjóra­tíð hennar er enn talin í dögum og fáir sáu það fyrir, þegar Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­fólks í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, ákvað að slíta meiri­hluta­sam­starf­inu í borg­inni að það myndi enda með því að nýr vinstri meiri­hluti tæki við stjórn­ar­taumunum undir for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Frá hruni hefur borg­inni verið stýrt í meiri­hluta­sam­starfi sem teygir frá vinstri og yfir miðju, þó Sam­fylk­ingin hafi alltaf átt þar aðild. Sú póli­tíska grein­ing að um sé að ræða hreinan vinstri meiri­hluta ein­faldar þó kannski að ein­hverju leyti skil­grein­ingu Flokks fólks­ins, leið­togi hvers hefur stundum lýst sér sem hægri póli­tíkus en á öðrum tímum sagst hafa jafn­að­ar­manna­hjarta. 

Heiða Björg segir að nýi meiri­hlut­inn, sá fyrsti sem hún leiðir, eigi …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IS
    Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Vona að Heiða og "samstarfshóps-systur" hennar geri gott. En þögnin um jafnréttiskröfur Heiðu hingað til vekur hins vegar furðu. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður, varst þú ekki meðvitaður um þær?

    Heiða hefur verið mjög hávær um jafnari hut kvenna í ráðum og stjórnum ríkis og sveitarfélaga í sinni pólitísku tíð. En loks þegar hún sjálf hefur mest völdin sjást þær kröfur né uppfylling hvergi. Kannski vildi hún bara hlut kvenna allann. Virðist svo í nöp við karla að gerði athugasemdir við stofnun Karlalistans framboðs til Alþingis. Hví spurði Aðalsteinn ekki út í þetta?

    Betra hefði verið að ráða borgarstjóra, og Heiða yrði forseti borgarstjórnar og frontaði "Samstarfshópinn". Enn betra að borgarstjóraembættið sé aflagt, og breytt í framkvæmdastjóra sbr. Svía. Og að sá yrði karlmaður í tilraun til kynjajafnréttis nú. Enginn karlmaður virðist formaður nefndar RVK sem verulegu máli skiptir að ég finn. Slíkt er jafnrétti Heiðu og hinna kvennanna fjögurra. Aðalsteinn?

    Skiptir kynjajafnréttið þá engu máli þegar sumar eru komnar með völd?
    Er kannski "pólitískur ómöguleiki" til staðar og sem gerir að verkum að við sættum okkur við "samstarfshóp" en ekki meirihluta eða amk minnihlutastjórn, og gerum ekki kröfu um ráðin borgarstjóra kk svo Heiða geti haldið áfram að halda saman samstarfshópnum, og sinna formennsku í Samtökum sveitarfélaga á sama tíma?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár