Mest lesnu viðtöl ársins 2024

Viðtöl við fjöl­breyttan hóp fólks voru mest lesin á árinu sem er að líða. Móðir fatl­aðs manns sem var læstur inni í íbúð sinni í 15 ár, hjón sem fundu hvort annað seinna á lífs­leið­inni og ung kona sem vill forða systk­inum sínum frá því að lifa sömu æsku og hún sjálf eru meðal þeirra sem veittu Heim­ild­inni við­töl á árinu.

Mest lesnu viðtöl ársins 2024

1. Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár

Mest lesna við­tal árs­ins var við Ásdísi Snjólfs­dóttur. Sveinn Bjarna­son, sonur hennar, er með mikla fötlun og bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á vegum vel­ferð­ar­sviðs Akur­eyr­ar­bæjar. Mál hans varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.

Höfundur: Erla Hlyns­dóttir.
Birtist 6. apríl.

2. Voru orðin lífsreynd og tilbúin fyrir betra líf saman

Bárður Sig­ur­geirs­son húð­læknir og eig­in­kona hans Linda Björg Árna­dóttir kynnt­ust á stefnu­móta­for­rit­inu Tinder fyrir sjö árum. Fimmtán ára ald­urs­munur er á hjón­unum sem þau segja að hafi aldrei truflað. „Það er bara dásam­leg til­finn­ing að vera ást­fang­inn og eiga traustan vin en ég er ekki bara ást­fang­inn af kon­unni minni heldur er hún líka minn besti vinur,“ segir Báður.

Höfundur: Svava Jóns­dóttir.
Birtist 11. apríl.

3. „Vildi að við hefðum verið teknar af mömmu“

Syst­urnar Krista og Alma Ósk Héð­ins­dætur ólust upp við vafa­samar aðstæður. Sagan af upp­eldi þeirra veitir inn­sýn inn í veru­leika barna sem eiga hvergi skjól. Krista sagði sögu þeirra í von um að yngri systk­ini þeirra fengju hjálp.

Höfundur: Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir.
Birtist 27. júlí.

4. Kærði nuddara Lauga Spa: Eins og þarna hefði ég verið sálarlega myrtur“

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn Gunnar Magnús Diego opn­aði sig um eft­ir­mál nudds sem hann fór í ásamt konu sinni í Laugum Spa á vor­mán­uðum 2023. Gunnar kærði nuddar­ann fyrir nauðgun en rann­sóknin var felld niður vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum. „Mér fannst eins og þarna hefði ég verið sál­ar­lega myrtur um tíma. Gjör­sam­lega. Tekið af mér allt. Ég var ekki neitt.“

Höfundur: Ragn­hildur Helga­dóttir.
Birtist 30. ágúst.

5. Missti son sinn í eldsvoða á Stuðlum

Faðir Geirs Arnar Jacobsen, sem lést í elds­voða á Stuðlum í októ­ber, vissi ekki að dreng­ur­inn hans væri inni á með­ferð­ar­heim­il­inu þegar kvikn­aði í. Jón K. Jacobsen segir að reynt sé að kæfa umræðu um „týndu börnin í kerf­inu.“ Hann hafi barist fyrir lífi sonar síns í kerf­inu en nú berj­ist hann í minn­ingu hans. „Ég barð­ist eins og ljón til að koma honum í skjól“

Höfundur: Margrét Mart­eins­dóttir.
Birtist 25. októ­ber.

6. „Hann sagðist ekki geta meir“

Þór­hildur Helga Þor­leifs­dóttir missti Patrek Jóhann son­ar­son sinn árið 2021. Hann féll fyrir eigin hendi fimmtán ára gam­all. „Ég gat ekki bjarg­að barna­barn­inu mínu. En ef það verð­ur til þess að ég geti kannski bjarg­að ein­hverj­um, þó ekki nema einu barni, þá vil ég segja sögu okk­ar.“ 

Höfundur: Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir.
Birtist 17. nóv­em­ber.

7.  Mistök, ham­ingja og vænt­ingar Katrínar

Í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í vor ræddi Katrín Jak­obs­dóttir um líf sitt og störf. Hún missti föður sinn ung og lærði þá að lífið væri mik­il­væg­ara en dauð­inn, stundin væri núna og ekki eftir neinu að bíða. „Fyrsta áfallið var þegar kom í ljós að það væri ekk­ert hægt að gera fyrir pabba. Annað áfall þegar hann dó.“

Höfundur: Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir.
Birtist 10. maí. 

8. Grunaði að það ætti að reka hana

Vig­dís Häsler var rek­in úr starfi fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna eft­ir að nýr for­mað­ur tók þar við fyrr á ár­inu. Hún seg­ir kosn­inga­vél Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa ver­ið gang­setta til að koma hon­um að. Vig­dís ræddi um brott­rekst­ur­inn og rasísk um­mæli sem for­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði um hana. Orð­in hafi átt að smætta og brjóta hana nið­ur. Hún seg­ist aldrei munu líta Sig­urð Inga Jó­hanns­son sömu aug­um eft­ir það.

Höfundur: Margrét Mart­eins­dóttir.
Birtist 1. nóv­em­ber.

9. Víða byggt á hættu­svæðum: Kostn­að­ar­samur hroki nútíma­manns­ins

Skipu­lags­fræð­ing­ur­inn og arki­tekt­inn Trausti Vals­son ræddi um hvernig á Íslandi hefði víða verið byggt á hættu­legum stöðum, án þess að gætt hafi ver­ið að því að kort­leggja marg­vís­lega nátt­úru­vá. „Það þurfa alltaf að koma upp ægi­legar hörm­ungar til að fólk kveiki á mál­efnum. Þá loks­ins er eins og þjóð­fé­lagið vakni.“

Höfundur: Arnar Þór Ing­ólfs­son.
Birtist 19. jan­úar.

10. Eina leiðin til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. „Ég var ekki skot­inn í neinum strákum því ég þorði ekki að leyfa mér að vera skot­inn í strákum.“

Höfundur: Erla María Mark­ús­dóttir.
Birtist 28. mars.
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár