Hæglæti er ofurkraftur í heimi sem er háður hraða

„Í heimi sem er háður hraða er hæg­læti ofur­kraftur,“ segir Carl Honoré, sem breiðir út boð­skap um ávinn­ing hæg­lætis og hæg­ara sam­fé­lags. Fyrsta skrefið í átt að hæg­ari lífstakti er að læra að segja nei. „Þegar þú segir nei við hlutum sem skipta ekki máli þá ertu að segja já. Stórt já við hlutum sem skipta í raun og veru máli.“

Hæglæti er ofurkraftur í heimi sem er háður hraða
Hæglæti er dyggð Carl Honoré, tals­maður Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­innar (e. The Slow Movement) segir tæki­færin til að hægja á svo sann­ar­lega til staðar á Íslandi. „Þetta er lít­ill, fal­legur staður með nátt­úr­una alltum­lykj­andi og það er ekki hægt að fara hratt yfir þegar móðir nátt­úra nálæg. Að vera umkringd nátt­úr­unni hægir á okkur, það er bara þannig.“ Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Þegar Carl Honoré, blaða­maður og rit­höf­undur, stóð sjálfan sig að því að kaupa bók­ina Einnar mín­útu sögur fyrir svefn­inn til að stytta tím­ann sem fór í að koma börn­unum í hátt­inn ákvað hann að líta á það sem vakn­ingu. Vakningu til að hægja aðeins á. 

„Ég ætl­aði meira að segja að panta bók­ina með hrað­send­ingu frá Amazon. Á þessum tíma­punkti átt­aði ég mig á að ég var búinn að tapa áttum. Ég var búinn að missa vitið, ég var fastur á hamstra­hjóli. Þetta var fárán­legt, ég var að lesa það hratt fyrir börnin mín að í minni útgáfu af Mjall­hvíti og dverg­unum sjö voru bara þrír dvergar. Það var ekki gott. Þegar það rann upp fyrir mér að ég var pabb­inn sem fannst góð hug­mynd að lesa 60 sek­úndur af Mjall­hvíti þá er það ákveð­inn enda­punktur. En á sama tíma var þetta stökk­pall­ur­inn minn inn í hæg­læt­is­hreyf­ing­una,“ segir Carl. 

Augna­blikin með börn­unum eru dýr­mæt en flestir for­eldrar kann­ast eflaust við að flýta sér í gegnum flestar athafnir hvers­dags­ins. „Við vitum að þetta eru augna­blikin sem verða dýr­mæt­ust eftir 20 ár en það eru ýmsar ástæður fyrir því að við reynum að hraðspóla í gegnum þau. Ég hafði alls konar ástæður fyrir því að fækka dverg­unum úr sjö í þrjá í sög­unni um Mjall­hvíti, það var í alvöru mikið að gera. En við verðum háð hrað­anum, okkur er kennt að vinna hratt og þegar við setj­umst niður til að lesa sögu erum við enn í þessum hraða takti. Þetta verður ávani og við­bragð, að gera allt hratt.“

„Ég var að lesa það hratt fyrir börnin mín að í minni útgáfu af Mjall­hvíti og dverg­unum sjö voru bara þrír dvergar“
Carl Honoré,
tals­maður Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­innar (e. The Slow Movement)

Vegferð Carls inn í Hæg­læt­is­hreyf­ing­una hófst á per­sónu­legum nótum og út frá hug­myndum hans um að njóta kvöld­lest­urs­ins með börn­unum hófst veg­ferð hans að því að verða rödd Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­innar á heims­vísu. 

Að gera eitthvað hægt er ekki neikvætt

Carl er fæddur í Skotlandi en ólst upp í Kanada og starf­aði sem blaða­maður, mest­megnis sem erlendur frétta­rit­ari, áður en hann átt­aði sig á að hann var að ferð­ast í gegnum lífið á ofur­hraða og ákvað að hægja á og helga líf sitt Hæg­læt­is­hreyf­ing­unni. Nú eru rúm 20 ár liðin og í dag er Carl tals­maður Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­innar (e. The Slow Movement) á heims­vísu. Fyr­ir­lestrar hans um ávinn­ing hæg­lætis og hæg­ara sam­fé­lags hafa vakið athygli og Carl er þekktur sem „rödd hæg­lætis“ víða um heim. Carl hlær þegar hann er spurður hvernig maður verður rödd heillar hreyf­ingar? 

 „Einhvern veg­inn varð ég and­lit þess að takast á við hraða menn­ingu og breiða út boð­skap hæg­lætis. Mottóið mitt er að í heimi sem er háður hraða er hæg­læti ofur­kraftur. Það kjarnar allt sem ég vil segja um Hæg­læt­is­hreyf­ing­una.“ Menning nútíma­sam­fé­lags ein­kenn­ist af hraða og Carl bendir á að að gera eitt­hvað hægt er almennt talið slæmt og að orðið „hægt“ sé sam­nefn­ari yfir eitt­hvað nei­kvætt. „Til dæmis leti, að vera heimskur, leið­in­legur, óham­ingju­samur, afkasta­rýr, eitt­hvað sem eng­inn vill vera bendl­aður við. Fyrstu við­brögð fólks þegar þú nefnir hæg­læti eru efa­semdir: „Úff, ég veit ekki hvort ég get gert það,““ segir Carl, sem hann vill breyta. „Að segja að hæg­læti sé ofur­kraftur breytir von­andi við­horfi fólks og fær það til að sjá heim­inn í nýju ljósi.“

Hæg­læt­is­hreyf­ingin á rætur sínar að rekja til Hæg­læt­is­fæðu­hreyf­ing­ar­innar (e. Slow-food movem­ent) sem varð til á Ítalíu á níunda ára­tugnum þótt hæg­læt­is­líf hafi fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda. Carl vill yfir­færa hug­mynd­ina um hæg­læti sem ofur­kraft á öll svið sam­fé­lags­ins. „Það er hægt að setja hæg­læt­is­gler­augun upp hvar sem er: Hæg tíska, hægt kyn­líf, hæg ferða­lög. Hvernig get ég notið þess betur með því að hægja aðeins á? Þetta er hnatt­ræn hug­mynda­fræði, mjög ein­föld en kraft­mikil.“ 

Carl tók með­vit­aða ákvörðun um að hægja á. Hann hætti að starfa sem erlendur frétta­rit­ari og fór að kynna sér Hæg­læt­is­hreyf­ing­una. „Þetta var per­sónu­leg veg­ferð. Ég fór að skrifa. Ég hef alltaf verið for­vit­inn og haft áhuga á að spyrja spurn­inga, leita svara og ferð­ast. Áður var það hluti af vinn­unni að skrifa en að skrifa um hæg­læti var mjög per­sónu­legt. Ég átt­aði mig ekki á því en ég var sjálfur fastur í hraðspólun. Ég var á hrað­ferð í eigin lífi í stað þess að lifa því.“ 

Carl segir að svarið við því hvernig hann varð rödd Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­innar sé lík­lega að finna í fyrstu bók­inni hans. Carl hefur skrifað nokkrar bækur um ávinn­ing hæg­lætis, en sú fyrsta kom út fyrir 21 ári: Lifum líf­inu hægar (e. In Praise of Slow) og hefur Carl vakið athygli víða um heim fyrir boð­skap sinn um ávinn­ing hæg­lætis og hæg­ara sam­fé­lags, hæg­ari og betri ákvarð­ana­töku, gæði hæg­ari sam­skipta og margt fleira. „Bókin kom út á réttum tíma. Hún fang­aði fyrstu augna­blikin af fólki að hraða sér í gegnum lífið. Mér finnst alveg jafn­gaman að tala og skrifa og ætli ég hafi ekki þannig orðið rödd Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­innar, með því að fylgja bók­inni eftir og halda fyr­ir­lestra víða um heim.“ 

Að lifa meira og betur

Í nútíma­sam­fé­lagi er stöðug pressa, með­vituð eða ómeð­vituð, um að gera allt hraðar, sem hefur þau áhrif að við flýtum okkur í gegnum lífið í stað þess að lifa því í raun og veru. Skilaboð Carls eru ein­föld. „Ef þú gírar þig niður, stígur á brems­una, nærðu yfir­sýn og allt rað­ast á sinn stað. Þú tengir betur, skapar meira, ein­beitir þér betur og afkastar meiru. Þú ein­fald­lega lifir meira og betur.“ Þetta kann að hljóma ein­falt en það getur reynst flókn­ara að fylgja því eftir. Carl gerir sitt besta til að vísa fólki veg­inn í átt að hæg­læti. 

„Fyrir marga er hraði ein útgáfa af afneitun, þetta er leið til að flýja sjálfan þig, leið til að hunsa erf­iðar spurn­ingar eins og: Hver er ég? Hver er til­gang­ur­inn? Er ég að lifa rétta líf­inu fyrir mig eða er ég á sjálf­stýr­ingu? Það er auð­velt að spýta í lóf­ana og halda sér upp­teknum. En við verðum að hægja á okkur til að takast á við stóru spurn­ing­arnar. Við þurfum að líta inn á við og leyfa hug­anum að reika til að finna svörin. Það kann að hljóma ógn­vekj­andi, það er auð­veld­ara að hafa mikið að gera og halda sér upp­teknum.“

Fastur í hugsunarlausri hraðferð

Þegar Carl hugsar til baka um hrað­lestr­ar­kvöldin með börn­unum fyrir svefn­inn áttar hann sig á að það var engin raun­veru­leg ástæða fyrir því að lesa svona hratt. „Ég var bara fastur í hrað­ferð, að gera allt hratt án þess að hugsa um það. Við erum mörg föst í þessum fasa, að gera allt hratt. Þetta er ávani eða ein­fald­lega smit­andi frá hegðun fólks­ins í kringum okkur.“ Carl hvetur fólk til að staldra við í and­ar­tak og spyrja: Er ég að gera þetta hraðar en ég þarf? Þessi litla pása getur breytt öllu því oft­ast er svarið já. „Ég þarf ekki að gera þetta svona hratt, ég gæti hægt aðeins á. Taka nokkra and­ar­drætti og halda svo áfram. Aðeins hægar. Þetta á auð­vitað ekki við allt sem við gerum í líf­inu en þetta er góður upp­haf­s­punktur. Að vera með­vituð um að við getum dottið í hraða­gildr­una án þess að átta okkur á því.“

Bjart­sýnn en raun­sær„Við erum komin að þol­mörkum, bæði hvað fólkið og jörðin sjálf þolir af hraða,“ segir Carl. Lausnin felst í auknu hæg­læti.

Hæg­læt­is­hreyf­ingin teygir sig inn á hin ýmsu svið og Carl nefnir nokkur dæmi þar sem takt­ur­inn hefur hægst. „Innan tækni­geirans er verið að end­ur­hugsa hvernig tækni virkar, hæg­læt­istíska hefur vaxið, en það stöðvar aftur á móti ekki hrað­tísk­una. Það sama á við um ferða­manna­iðn­að­inn, það er enn þá fólk sem flýgur til Barcelona í hádeg­is­mat og áhrifa­valdar ferð­ast til staða gagn­gert til að taka myndir af sér og ekk­ert meira en á sama tíma er stór hreyf­ing sem ferð­ast hægt um heim­inn og í nærum­hverf­inu. Það er ákveðið reipi­tog milli hæg­ferðar og hrað­ferðar sem áður ein­kennd­ist ein­göngu af hraða. Það er að mynd­ast ákveðið jafn­vægi og ég trúi því að Hæg­læt­is­hreyf­ingin muni ná lengra.“ 

Komin að þolmörkum

Þegar Carl tók sín fyrstu skref innan Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­innar fannst honum heim­ur­inn vera kom­inn á neyð­ar­stig þegar kom að hraða í sam­fé­lag­inu. Með til­komu sam­fé­lags­miðla og gervi­greindar hefur neyð­ar­stigið stig­magn­ast. „Við erum komin að þol­mörkum, bæði hvað fólkið og jörðin sjálf þolir af hraða.“

„Það sem við gerum vel er að gera eitt­hvað hægt, sýna sam­kennd, að skapa, að hlusta og tengja“

Svarið er að hægja á. „Ég held að Hæg­læt­is­hreyf­ingin sé góð leið til að svara spurn­ing­unni um hvað það þýðir að vera mennskur á tímum hraðra breyt­inga með sam­fé­lags­miðlum og gervi­greind sem dæmi. Hvað komum við með að borð­inu sem mann­eskjur? Það sem við gerum vel er að gera eitt­hvað hægt, sýna sam­kennd, að skapa, að hlusta og tengja. Allt sem við gerum vel gerum við hægt. Við getum enn gert það mennska betur en tæknin. Og ég vona að það verði þannig áfram, ég veit ekki hvað verður um okkur ann­ars. Ef við nýtum visk­una sem við búum yfir með því að hægja á þá getum við lifað í sátt og sam­lyndi með gervi­greind­inni. En kannski er þetta útópía.“ 

Á hæg­ferð um landiðCarl Honoré hefur notið þess að ferð­ast hægt um Ísland. Fljúg­andi hálka, kyrr­látt vetr­ar­kvöld og norð­ur­ljós eru á meðal þess sem hann hefur upp­lifað í Íslands­heim­sókn­inni.

Carl er bjart­sýnn að eðl­is­fari og lítur björtum augum til fram­tíðar. „Að gera eitt­hvað hægt gerir okkur að bestu útgáf­unni af okkur sjálfum. Ég er bjart­sýnn og vona svo sann­ar­lega að útkoman verði góð en ég er líka raun­sær og það eru hlutir til að hafa áhyggjur af.“ 

Carl ferð­ast víða um heim og flytur fyr­ir­lestra um ofur­krafta hæg­lætis og er staddur á Íslandi þessa dag­ana. Kveikjan að Íslands­för­inni var þó önnur. „Ég er mik­ill aðdá­andi Sigur Rósar, það er upp­á­halds­hljóm­sveitin mín. Þegar ég sá að þeir voru að spila í Reykja­vík keypti ég tvo miða og sann­færði kon­una mína um að koma með.“ Þegar Carl til­kynnti um Íslands­ferð­ina á sam­fé­lags­miðlum leið ekki á löngu þar til Hæg­læt­is­hreyf­ingin á Íslandi hafði sam­band en Carl hefur áður verið í sam­bandi við tals­menn hreyf­ing­ar­innar hér á landi. „Þannig við ákváðum að gera smá ferð úr þessu,“ segir Carl sem hefur ferð­ast um landið þessa vik­una ásamt eig­in­konu sinni. „Við ætlum að dvelja í gömlu húsi í óbyggðum. Við ætlum að taka fullt af bókum með og fara í göngu­ferðir. Við ætlum að njóta okkar mjög hægt á Íslandi,“ segir Carl. 

Á morgun, laug­ar­dag, mun hann halda erindi í Háskóla Íslands undir yfir­skrift­inni: Hæglæti – hvernig er hægt að dafna í hröðum heimi? Carl hvetur áhuga­sama til að gefa sér tíma til að kynn­ast Hæg­læt­is­hreyf­ing­unni og til­einka sér hæg­læti. „Við erum alltaf að sann­færa okkur um að við höfum ekki tíma fyrir eitt­hvað. En  stöldrum við og hugsum hvort það sem við erum að gera skipti veru­legu máli eða erum við að gera hlut­ina til að þókn­ast öðrum?“ Það er stóra spurn­ingin. 

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Isminn sem viđ lifum í krefst þess ađ allt gerist hratt svo ađ hjólin snúist í samfélaginu og hagnađur myndist annars fáum viđ bara ekki nóg ađ bíta og brenna, þó viđ séum nú þegar ađ brenna og gleypa jörđina okkar. Verđum ađ hefta Mammon.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár