Teester sýnir blaða­mönnum hand­legg­inn með snáka­bit­inu.

Upphaf kalda stríðsins – í bjálkakofa í Norður-Karólínu?

Ógn­ar­jafn­vægi stór­veld­anna eftir seinni heims­styrj­öld hefur verið vel lýst með orð­unum kalt stríð, en hvaðan kom það hug­tak?

Þann 6. ágúst 1934 gekk krafta­legur 39 ára pré­dik­ari í lít­illi kirkju fram fyrir söfnuð sinn. Kirkjan var reyndar ekki annað en hrör­legur bjálka­kofi en þar hafði pré­dik­ar­inn, Albert Teester, öðru hvoru haldið eld­messur und­an­farin ár í sinni eigin kirkju­deild og lofað guð bein­línis brenn­andi augum. Þetta var eigi all­langt fyrir utan smá­þorpið Sylva í Norður-Karólínu í Banda­ríkj­unum, á þeim slóðum þar vestra sem búa „hill­billies“ eða „rednecks“ eða hvað við viljum kalla það góða fólk.

Það má geta þess að kvik­myndin Deliverance frá 1972 var tekin upp í bænum og nágrenni.

Sylva er svo­leiðis þorp.

Nokkrir tugir karla og kvenna höfðu árið 1934 troðið sér inn í bjálka­kof­ann til að vera við mess­una. Venju­lega var messað í öllu hefð­bundn­ari kirkju í Sylva en nú hafði Teester boðað söfn­uð­inn í þennan ein­falda kirkju­kofa sinn og nálægt alt­ar­inu stóðu tutt­ugu svo­kall­aðir „dýr­lingar“ sem voru sér­stakir full­trúar Teesters í …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár