Enginn tekur ábyrgð á slysi sem leiddi til kvalafulls dauðdaga

Dæt­ur manns sem lést eft­ir að 60 kílóa hurð féll inni í her­bergi hans á hjúkr­un­ar­heim­ili segja óvið­un­andi að eng­inn hafi tek­ið ábyrgð á slys­inu og að föð­ur þeirra hafi ver­ið kennt um at­vik­ið. Önnur eins hurð hafði losnað áður en slysið varð en engin frek­ari hætta var talin vera af hurð­unum. Það reynd­ist röng trú. Kon­urn­ar kröfð­ust bóta en rík­is­lög­mað­ur vís­aði kröfu þeirra frá. Þær vilja segja sögu föð­ur síns til þess að vekja at­hygli á lök­um að­bún­aði aldr­aðra á Ís­landi.

Enginn tekur ábyrgð á slysi sem leiddi til kvalafulls dauðdaga
Systur Þrjár af fjórum dætrum Guð­mundar, þær Alda, Harpa og Ingunn Hulda, vilja segja sögu föður síns til þess að vekja athygli á aðbún­aði aldr­aðra. Mynd: Golli

Tveimur vikum áður en Guð­mundur Ívarsson lést gekk hann metrana 200 frá hjúkr­un­ar­heim­il­inu Ljós­heimum á Selfossi yfir á hjúkr­un­ar­heim­ilið Móberg með göngu­grind á undan sér. Þótt hann væri orð­inn 92 ára og hafi mætt sínum heilsu­brestum yfir ævina var heilsan ágæt, hann var enda mik­ill heilsu­post­uli, þoldi ekki sykur og hvítt hveiti, bak­aði sitt brauð og hjólaði lengi vel um Selfoss.

Dætur Guð­mundar voru því alls ekki að búast við því að ein­ungis tveimur vikum síðar myndu þær þurfa að kveðja föður sinn sár­kval­inn þar sem hann lá á hjúkr­un­ar­heim­il­inu. En þannig end­aði ævi hans. Það hefði þó ekki þurft að fara svo. Dætur hans telja að mögu­legt hefði verið að afstýra slys­inu sem dró hann til dauða. Önnur eins hurð hafði losnað, en ekki fallið, áður en slysið varð á Guðmundi, en engin frek­ari hætta var talin á því að hurðir myndu losna. Þá kvart­aði ein dætr­anna undan stífri renni­hurð í her­bergi hans í tvígang við starfs­fólk. Það var þessi hurð sem að lokum spil­aði stórt hlut­verk í and­láti Guð­mundar.

Eftir reynsl­una velta dætur hans fyrir sér aðbún­aði aldr­aðra og því hvort ekki hefði allt farið í háa­loft ef ung mann­eskja hefði orðið fyrir sam­bæri­legu slysi í hús­næði þar sem öryggi hennar ætti að vera tryggt.

Á rölt­inuGuð­mundur sést hér ganga frá Ljós­heimum yfir á Móberg.

Aðdragandinn: Sá strax að eitthvað væri að hurðinni

Það var um vorið árið 2022 sem Guð­mundur, þá 92 ára gam­all, mjaðm­ar­brotn­aði og þurfti að leita á sjúkra­hús. Hann hafði fram að því verið fremur heilsu­hraustur – ein af fjórum dætrum hans hafði meira að segja sum­arið áður komið að honum brölt­andi uppi á þaki í ein­hverjum við­gerðum – og jafn­aði sig ágæt­lega á mjaðm­ar­brot­inu en þó ekki nógu vel til þess að kom­ast aftur heim í kjöl­farið. Hann fór því í hvíld­ar­inn­lögn á hjúkr­un­ar­heim­ilið Ljós­heima, sem stað­sett er á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands.

„Það var eitt­hvað að hurð­inni“
Alda Guð­munds­dóttir

Þó að heilsan hafi ekki alltaf verið full­komin – Guð­mundur hafði upp­lifað ósæð­ar­þrengsli, hjarta­bilun og krabba­mein sem hann losn­aði við 20 árum fyrr – var hann sann­ar­lega ekki far­lama þegar hann lagð­ist inn og var ekk­ert sér­stak­lega sáttur við til­hög­un­ina enda vanur að standa á eigin fótum fram að því.

Hann hafði unnið langt fram á átt­ræð­is­ald­ur­inn sem sjálf­stæður verk­taki hjá Vega­gerð­inni, rak sinn vöru­bíl og gröfu og gerði við það sem þurfti.

„Hann hætti ekki að keyra vöru­bíl­inn fyrr en hann var að verða átt­ræður, við þurftum að segja honum: „Nú þarft þú að fara að slaka á“,“ rifjar Ingunn Hulda, dóttir Guð­mundar, upp.

60 kíló
þyngd hurð­ar­flek­ans

Þegar nýtt hjúkr­un­ar­heim­ili opn­aði hinum megin við göt­una síðar um haustið 2022 sáu dætur hans það í hill­ingum og sóttu um fyrir föður sinn. „Það var allt svo fal­legt og nýtt,“ segir Ingunn.

Þeim varð að ósk sinni. Guð­mundur flutti inn á nýja hjúkr­un­ar­heim­ilið, sem þótti svo fal­legt að það hlaut fyrir það verð­laun, um miðjan októ­ber­mánuð. Her­bergj­unum var lýst sem hálf­gerðum svítum í kvöld­fréttum Stöðvar 2.

Enginn annar hafði nokkurn tím­ann búið í her­berg­inu sem Guð­mundur fékk úthlutað og starfs­fólkið var jafn­framt að stíga sín fyrstu skref í nýja húsa­kost­inum. Það hafði sína ókosti og kvört­uðu syst­urnar í fyrsta lagi yfir því að eng­inn tæki ábyrgð á að hlaða heyrn­ar­tæki Guð­mundar – með þeim afleið­ingum að hann heyrði illa og jafn­vel alls ekki og starfs­fólk ýjaði stundum að því að hann væri heila­bil­aður sem hann var ekki, að sögn dætr­anna. Í öðru lagi segj­ast þær hafa kvartað yfir því að hurðin að her­bergi Guð­mundar og hurðin inn á bað­her­bergið, sem var aðgengi­leg inn af her­berg­inu, væri stíf.

„Þegar við komum að heim­sækja hann fyrst tókum við eftir því að það átti eftir að skipta um pumpu á hurð­inni inn í her­bergið, hann gat ekki opnað hana og lokað henni sjálfur. Hún var allt of stíf. Svo var eitt­hvað að upp­setn­ing­unni á renni­hurð­inni inn á sal­erni, það var ekki hægt að renna henni eðli­lega. Hún hökti ein­hvern veg­inn,“ segir Alda, dóttir Guð­mundar.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár