Antígóna gengur fram á lík bróður síns í leik­riti Sófóklesar. Eða er þetta mann­eskjan sem gengur fram á lík hinnar fjár­sjúku nátt­úru? — Mál­verkið er eftir Niki­foros Lytras.

Að mölva fjall

Forn-Grikkir og Róm­verjar voru heill­aðir af dugn­aði manns­ins og töldu honum heim­ilt að leika nátt­úr­una hvernig sem honum sýnd­ist. Þar kom þó að fáeinar grímur virt­ust renna á hugs­andi menn.

Svo mælti kór öld­unga í gríska borg­rík­inu Þebu einu sinni:

„Margt er und­rið og mun þó víst
mað­ur­inn sjálfur undur stærst.“

Þannig þýddi Helgi Hálf­dan­ar­son alþekkta full­yrð­ingu öld­ung­anna sem sett er fram í harm­leiknum Antígónu sem Sófókles skrif­aði á fimmtu öld FT, eða fyrir um 2.500 árum. Næst skyldi maður ætla að öld­ung­arnir legðu út af orðum sínum með því að draga upp af því hve djúp­hug­ull mað­ur­inn sé, ástríðu­mik­ill í anda, eld­móð­ugur í list sinni og sköpun.

En málið snýst ekki alveg um það hjá öld­ung­unum. Sönnun þess hví­líkt undra­verk mað­ur­inn sé er hve miklu og algjöru valdi hann hefur náð yfir nátt­úr­unni. Því kór­inn heldur áfram svo:

„Þar sem ólg­andi hrím­grátt haf
hrann­ast úfið í vetr­ar­byl
ristir hann kembdan kólgu­skafl
kili traustum á við­sjáls­leið.
Móður guð­anna, gömlu Jörð, 
grósku­ríka svo aldrei þverr, 
markar hann sér til sáðs hvert vor,
svörð­inn skárar með plógi …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár