Kýs náttúruna sem sinn leikvöll
Við ysta haf Viktoría val­hoppar um fjör­una með heimaln­inga hlaup­andi á eftir sér. Mynd: Golli

Kýs náttúruna sem sinn leikvöll

Dyr Finn­boga­staða­skóla í Árnes­hreppi á Ströndum verða brátt opn­aðar á ný fyrir tveimur nem­endum. Val­hopp­andi nátt­úru­barnið Viktoría Dav­íðs­dóttir er annar þeirra. Ærsla­belgir og önnur leik­tæki í Hafn­ar­firði eru ágæt til síns brúks en hún segir miklu meira hægt að gera í sveit­inni. Þar sé til dæmis hægt að eiga kindur.

Ungt fólk með barn á grunn­skóla­aldri er flutt í Árnes­hrepp. Já, það eitt og sér er frétt. Íbúum hefur fækkað hratt und­an­farna ára­tugi, ekk­ert barn hefur búið í hreppnum í nokkur ár og skól­inn því verið lok­aður. Það er sárt fyrir hverja sveit. Önnur stór­frétt frá fámenna sam­fé­lag­inu í fjalla­salnum tign­ar­lega á Ströndum er sú að þetta unga fólk hefur tekið við fjár­búi. Og þriðja og kannski besta fréttin er sú að annað barn er vænt­an­legt í sveit­ina og því til­efni til að hefja kennslu í Finn­boga­staða­skóla á ný. Nýtt fólk. Nýir bændur. Hlæjandi börn.

Val­hopp­andi reyndar líka. Eða þannig lýsir Sigrún Sverr­is­dóttir dóttur sinni og Davíðs Más Bjarna­sonar, Viktoríu. Að hún sé orku­mikið nátt­úru­barn. Og hvar er þá betra í heimi hér að búa en einmitt í Árnes­hreppi?

„Hún vill helst vera að vísitera allt frá­bæra fólkið hérna alla daga! Þess á milli vill hún …
Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár