Helgimorð á kvennaeyju

Ný þýð­ing á Landa­fræði Strabós „fyrir nútíma­fólk“ verður til þess að rifja upp margar furður.

Helgimorð á kvennaeyju
Grikkir og Róm­verjar voru hneyksl­aðir á mann­fórnum Galla/Belga. Hinir síð­ar­nefndu töldu slíkt mikla villi­mennsku en sjálfir stund­uðu þeir mann­fórnir á leik­völlum gladíator­anna.

Þegar ég var ung­piltur las ég reyfara eftir skoska rit­höf­und­inn Alistair MacLean mér mjög til skemmt­unar. Sögurnar hans voru æsi­legar og spenn­andi en stóðu þó föstum fótum í raun­sæ­is­hefð­inni; voru sem sé engar fantasíur og þar komu hvorki ofur­hetjur, galdrar né nokkuð yfir­nátt­úru­legt við sögu.

Þannig vildi ég einmitt hafa spennu­sögur. Hjá Alistair MacLean gerð­ist ekk­ert nema það sem hefði getað gerst.

Sarah PothecaryNý og aðgengi­lega þýð­ing hennar á Landa­fræði Strabós hefur aukið áhuga á hinu forna riti.

Í einni bókanna hans var þó sena sem mér blöskr­aði og fannst raunar svo fárán­leg að það lá við að hinn ell­efu ára ég afskrif­aði MacLean í eitt skipti fyrir öll. Bókin hét Leikföng dauð­ans, minnir mig, og þar var sögu­hetja neydd til að horfa á þegar hópur hol­lenskra mjalta­stúlkna (já, mjalta­stúlkna!) gefur sér tíma frá hey­skap og tekur þá upp á því …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár