Veiði­menn Lúðvík sést hér í for­grunni mynd­ar­innar og Haukur baka­til. Þeir eru á meðal á þriðja tug strand­veiði­manna sem veiða á svæð­inu. Mynd: Golli

Þeir stóru ryksuga flóann í „vonlausri samkeppni“

„Þetta er von­laus sam­keppni, þetta eru margir fót­bolta­vellir sem þeir draga á eftir sér,“ segir strand­veiði­maður í Norð­ur­firði um stóra ísfisk­tog­ara á svæð­inu. „Stjáni bæjó, þegar hann var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra afnam hann svo mikið af reglu­gerðum að þá opn­að­ist bara hér um allt fyrir tog­ara.“

Við höfn­ina í Norð­ur­firði voru tveir félagar, hvor af sínum strand­veiði­bátnum, að landa nýveiddum þorski í byrjun viku. Annar þeirra hafði farið á veiðar klukkan eitt um nótt­ina, hinn þremur tímum síðar. Það var eng­inn mættur á fiski­mark­að­inn svo þeir hjálp­uð­ust að við lönd­un­ina, menn­irnir tveir – Lúðvík Gunn­laugs­son og Haukur Pét­urs­son. 

Þeir eru hluti af á sjötta hund­rað strand­veiði­manna sem fengu leyfi til veiða þetta árið. Þeim er nú heim­ilt að veiða 12.000 tonn af þorski sam­an­lagt á hand­færi fjóra daga vik­unnar frá maí­byrjun til ágúst­loka. Kvótinn var 10.000 tonn þangað til í gær, þegar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra jók hann um 2.000 tonn eftir beiðni strand­veiði­manna um aðeins meira, 3.600 tonn auka­lega.

Hver strand­veiði­bátur má mest veiða 774 kíló af slægðum þorski á hverjum veiði­degi og voru Lúðvík og Haukur komnir inn fyrir klukkan níu þennan morg­un­inn með sinn skammt.

Hægt að gleyma svæðinu þegar …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Myndirnar hans Golla eru allar jafn dýrðlegar. Ekki bara með þessari grein heldur alltaf.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár