Örvænt­ing Frá atburð­inum á mánu­dag þegar karl­maður klifarði yfir hand­riðið sem skilur þing­pall­ana og þingsal­inn að og kall­aði „þú ert hjarta­laus“ þegar Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra mælti fyrir frum­varp­inu. Mynd: Golli

„Norðurlönd eru ekki það sama og Norðurlönd“

Þar sem Norð­ur­löndin fást við útlend­inga­mál með ólíkum hætti þurfa gögn sem sýna mun­inn á fram­kvæmd­inni að koma fram við með­ferð útlend­inga­frum­varps­ins í þing­nefnd, að mati þing­flokks­for­manns VG. „Þau virð­ast sum hver hafa náð ágætum árangri en sum ekki,“ segir hann.

Frekari gögn þurfa að koma fram í með­ferð útlend­inga­frum­varps Guðrúnar Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, að mati þing­flokks Vinstri grænna. Formaður þing­flokks­ins, Orri Páll Jóhanns­son, greindi frá því á þing­fundi nýverið að flokk­ur­inn hefði afgreitt frum­varpið með fyr­ir­vörum.

Orri Páll segir í sam­tali við Heim­ild­ina að þar sem ætl­unin sé að stilla lög­gjöf­ina í átt að Norð­ur­lönd­unum, sem fást við útlend­inga­mál með mis­jöfnum hætti, þurfi gögn sem eru til og bera saman aðferðir Norð­ur­land­anna að fylgja frum­varp­inu. 

„Norð­ur­lönd eru ekki það sama og Norð­ur­lönd,“ segir Orri Páll og vísar til þess að fram­kvæmdin sé ekki sú sama hjá öllum Norð­ur­landa­þjóð­unum. 

„Þau virð­ast sum hver hafa náð ágætum árangri en sum ekki. Við höfum fulla ástæðu til þess að var­ast það sem kannski hefur ekki farið eins vel en viljum líka taka upp það sem hefur reynst vel,“ segir Orri Páll og nefnir sér­stak­lega Noreg í þessu …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HS
    Hjalti Sæmundsson skrifaði
    Gerið okkur nú þann greiða að setja saman eins góðan og greinargóðan samanburð reglna vegna útlendingamála sem gilda á norðurlöndunum. Umræðan kemur að litlu gagni til skilnings á málefninu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár