Stöðugt stríð lengir líf ríkisstjórnar Ísraels

Öfga­flokkar í rík­is­stjórn Ísraels hindra samn­inga um vopna­hlé og frelsun gísla Hamas-sam­tak­anna og kalla eftir land­námi á Gaza. Net­anyahu á allt undir því að rík­is­stjórnin haldi, en hann er gríð­ar­lega óvin­sæll innan Ísraels og rúm 70% Ísraela vilja snemm­búnar kosn­ingar.

Stöðugt stríð lengir líf ríkisstjórnar Ísraels
Mót­mæl­endur í Tel Aviv 3. febr­úar Á skilt­inu stendur „rík­is­stjórn eyði­legg­ingar heim­ila“. Mót­mæl­endur köll­uðu eftir afsögn rík­is­stjórn­ar­innar og snemm­búnum kosn­ingum. Mynd: AFP

Í blá­lok árs 2022 mynd­aði núver­andi for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, Benjamin Net­anyahu, brot­hætta rík­is­stjórn. Naumur meiri­hluti upp á fjóra þing­menn, af alls 120 þing­mönnum ísra­elska þings­ins, með sam­steypu­stjórn sjö stjórn­mála­flokka. Nú þegar almenn­ings­á­lit innan Ísraels er byrjað að snú­ast gegn stríð­inu og Net­anyahu má sjá bresti í þessu fjöl­flokka­sam­starfi. Samhliða þessu felldi hæsti­réttur Ísraels umdeildar breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar á dóms­kerfi lands­ins úr gildi í jan­úar og máls­með­ferð vegna meintrar spill­ingar Net­anyahu heldur loks áfram eftir ára­langar tafir. Áfram­hald­andi stjórn­mála­fer­ill hans og sam­starf rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er í tölu­verðri hættu ef að stríð­inu á Gaza lýkur sem varpar ljósi á ískyggi­lega hags­muni þess efnis að halda stríð­inu áfram.

Stjórnarkrísa árum saman vegna spillingarmála Netanyahu

Af vand­ræða­gangi í ísra­elskum stjórn­málum er tölu­verð for­saga, allt aftur til árs­ins 2018. Í stuttu máli sagt var stjórn­ar­krísa í Ísrael í um fjögur ár, allt til nóv­em­ber 2022, þegar núver­andi þing var kosið. Fimm skyndi­kosn­ingar áttu sér stað á …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár