„Sögðu okkur að búa okkur undir að jarða hana“

Fyrir rúmum 30 árum féll Wala Abu Libdeh fram af svölum á heim­ili sínu í Jer­úsalem. Minn­ingar af slys­inu og því hvernig UNRWA bjarg­aði lífi Wölu eru enn ljós­lif­andi í huga systur hennar, Fidu Abu Libdeh. Hún segir það sárt að utan­rík­is­ráð­herra hafi gert hlé á greiðslum til stofn­un­ar­innar.

„Sögðu okkur að búa okkur undir að jarða hana“
Viðbrögð „Mér finnst þetta vera mjög harka­leg við­brögð,“ segir Fida sem bendir á að 12 starfs­menn séu ein­ungis agn­ar­smár hluti af þeim 30.000 sem starfa hjá UNRWA. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fida Abu Libdeh var inni að leika sér í íbúð fjöl­skyld­unnar í blokk í Jer­úsalem þegar yngri bróðir hennar kom inn til hennar og sagði: „Wala datt fram af svöl­unum.“ Fida, sem var 11 ára gömul á þessum tíma, trúði ekki orðum bróður síns og fór sjálf út á svalir. Þegar hún leit fram af svöl­unum birt­ist henni hræði­leg sjón. Á jörð­inni lá fimm ára systir hennar, Wala Abu Libdeh.

„Enn þann dag í dag sé ég fyrir mér hvernig hún lá þarna í blóði sínu,“ segir Fida. „Þetta var áfall.“

Fida, Wala, systk­ini þeirra og for­eldrar eru palest­ínsk og voru þrátt fyrir að borga skatta í Ísrael með mjög tak­mörkuð rétt­indi þar þegar slysið átti sér stað. Á spít­al­anum sem þau höfðu aðgengi að í arab­íska hluta Jer­úsalem var ein­ungis í boði grunn­þjón­usta sem nægði ekki til að bjarga lífi Wölu. 

„Þau gátu ekki aðstoðað hana …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Íslendingar standa með ykkur. Þessir peningar komast til Palestínu þó verið sé að skoða hver afskipti hamas var á þessum samtökum. Treystu okkur. Gott að systir þí lifði og gaman að þið eruð komin og kunnið íslensku ❤️
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár