Mynd: Golli

Prestar mótmæla brottvísun barnshafandi konu

Prestar Ástjarn­ar­kirkju í Hafn­ar­firði sendu áskorun á yfir­völd í dag og mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri brott­vísun fjög­urra, bráðum fimm, manna fjöl­skyldu. Í fjöl­skyld­unni eru tvö börn: Mike litli sem er á öðru ári og hin ell­efu ára gamla Samara. Lítið systk­ini er á leið­inni. Prest­arnir vilja að yfir­völd veiti fjöl­skyld­unni dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Við mót­mælum því að það eigi að senda hana til baka til heima­lands­ins inn í afar ótryggar aðstæður,“ segir séra Bolli Pétur Bollason prestur í Ástjarn­ar­kirkju í Hafn­ar­firði og vísar til Mariu Camilu Velez Gomez, kól­umbískrar tveggja barna móður sem hefur verið dug­leg að sækja kirkju­starfið síðan hún kom hingað til lands í lok árs 2022. 

Heim­ildin fjall­aði um mál Mariu Camilu og fjöl­skyldu hennar í des­em­ber­mán­uði. Þá lýstu hún og eig­in­maður hennar Leonard Gallego Vargaz ótt­anum við það sem gæti gerst ef þau yrðu send aftur til Kólumbíu. 

Þau sóttu um vernd vegna ofsókna í heima­land­inu sem þau segj­ast hafa orðið fyrir af hálfu með­lima FARC-skæru­liða­hóps­ins. Bróðir Leonards var myrtur mán­uði eftir að fjöl­skyldan kom til Íslands, og segir Leonard að FARC sé tal­inn bera ábyrgð á dauða hans. 

„Þegar okkur fóru að ber­ast hót­anir fórum við að skoða á net­inu hvert væri best að fara. Við sáum að Ísland er eitt af örugg­ustu lönd­unum í heimi,“ sagði Leonard.

Mikið í mun að fá að vera áfram

Fjöl­skyldan hefur fengið neitun á báðum stjórn­sýslu­stigum: Hjá Útlend­inga­stofnun og Kæru­nefnd útlend­inga­mála og gæti þeim því verið vísað úr landi á hverri stundu. Sú stund hefur þó ekki verið ákveðin enn að þeim vit­andi svo þau eru ein­fald­lega í bið­stöðu. 

Um jólinFjöl­skyldan býr í lít­illi íbúð á Völlunum í Hafn­ar­firði. Þau reyndu að gleyma raunum sínum yfir jólin.

Bolli tekur frá­sögn fjöl­skyld­unnar trú­an­lega og segir að áskorun sem hann og Arnór Bjarni Blom­ster­berg, prestur við Ástjarn­ar­kirkju, sendu á nokkur ráðu­neyti hafi verið skrifuð af nokkrum ástæðum: 

„Það er þessi teng­ing, það er líka umfjöll­unin og svo að [Maria] Camila hefur verið hér mjög virk og sótt starfið mjög reglu­bundið og sýnt öllu mik­inn áhuga. Henni er mikið í mun að fá að vera áfram og fá að vera í öryggi og frið. Það sem þau hafa búið við hérna sýnir það að þau eru aug­ljós­lega að flýja mikla neyð,“ segir Bolli. „Það er líka vegna þess að þau leit­uðu eftir stuðn­ingi.“

SystkiniMike litli og Samara á heim­ili sínu í Hafn­ar­firði. Samara gengur í skóla í Hafn­ar­firði og er farin að læra íslensku.
Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár