Kom fyrir ástina en mætti fordómum

„Rasismi hefur alltaf verið til staðar hér,“ segir Achola Otieno, sem hefur búið á Íslandi í að verða 14 ár. Hún finnur fyrir kerf­is­bundnum ras­isma og for­dómum víða: Í gegnum niðr­andi texta í sönglögum, þegar hún opnar dag­blaðið og sér þar meið­andi orð um hör­unds­dökka í kross­gátu og jafn­vel á fót­bolta­móti.

Kom fyrir ástina en mætti fordómum
Fordómar „Rasismi er kerf­is­bund­inn en við þurfum að setja inn kerfi til þess að vinna gegn honum,“ segir Achola. Mynd: Golli

Rasismi og for­dómar gegn fólki sem hefur annað lit­ar­haft en hvítt hafa orðið sýni­legri með til­komu sam­fé­lags­miðla að mati Acholu Otieno, sem fædd­ist í Kenía en varð ást­fangin af íslenskum manni þegar hún var stödd hér á landi vegna starfa sinna sem flug­freyja. Hún hefur búið hér meira og minna síðan og á nú hér fjöl­skyldu. 

„Ég kom fyrir ást­ina,“ segir Achola bros­andi. 

Hún varð snemma fyrir for­dómum á grund­velli lit­ar­hafts en það trufl­aði hana ekki mikið til að byrja með, þá var hún á bleiku skýi og enn að fóta sig í íslensku sam­fé­lagi. Síðan eru liðin þónokkur ár og Achola segir að ekki hafi dregið úr ras­ism­anum. 

„Fordómar eru dag­legir,“ segir Achola. „Kannski ekki beint um mig en við fólk sem er með svip­aðan bak­grunn. Það er munur á for­dómum og kerf­is­bundnum ras­isma. Ras­ism­inn er kerf­is­bundn­ari. Hann er í skóla­bókum, í sjón­varps­þáttum, hjá lög­regl­unni.“ 

…
Kjósa
62
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Algerlega sammála Báru Halldórsdóttur og Achola Otieno.
    Talandi um utanaðkomandi, við verðum svo mikið ríkari þegar við fáum innspítingu frá hinum stóra heimi til landsins eins og dæmin sanna, ekki bara útsýnið úr framsætinu hjá frægum öku-Þór Alþingis, sem er reyndar með nokkra farþega með sér "úti að aka,, og erum við þó rík fyrir í okkar dásamlega landi spillingarinnar.
    0
  • Bára Halldórsdóttir skrifaði
    Því miður verður þessu kannski sópað til hliðar eins og öðru. Talið ýkjur eða misskilningur. Íslendingar eru asnalega tregir til við að meðtaka gagnrýni á glansmyndina sem þeir hafa skapað. Gott viðtal við greinda konu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár