Vertu „jáhrifavaldur“ í eigin lífi
Jáhrifa­valdur Erla Guð­munds­dóttir, íþrótta­fræð­ingur og -kenn­ari, heilsu­m­ark­þjálfi og ung­barna­sund­kenn­ari, hefur unun að því að aðstoða fólk við að finna heilsu­rækt við hæfi. Mynd: Golli

Vertu „jáhrifavaldur“ í eigin lífi

Nær allar lífs­á­kvarð­anir hafa áhrif á heils­una. Erla Guð­munds­dóttir íþrótta­fræð­ingur hvetur fólk til að vera jáhrifa­valdur í eigin lífi (já, jáhrifa­valdur, ekki áhrifa­valdur) með því að taka ákvarð­anir sem hafa jákvæð áhrif á heils­una. Ein slík, að fagna 365 hreyfi­dögum í Himna­stig­anum í Kópavogi, hafa eflt heilsu Erlu og haft hvetj­andi áhrif á aðra.

Fyrir tveimur árum setti Erla Guð­munds­dóttir, íþrótta­fræð­ingur, íþrótta­kenn­ari, heilsu­m­ark­þjálfi og ung­barna­sund­kenn­ari með meiru, sér mark­mið að hreyfa sig dag­lega, allt árið. Það tókst næstum því, það vant­aði tvo daga upp á. „Þannig 2. jan­úar 2023 var hreyfi­dagur númer 365 og ég var að fagna því og ætl­aði bara að hafa þetta lít­inn við­burð, þetta átti ekki að vera eitt­hvað risa­stórt en mig lang­aði að gera eitt­hvað skemmti­legt,“ segir Erla, sem ákvað að fagna áfang­anum með því að bjóða vinum og vanda­mönnum í Himna­stig­ann; 207 þrepa tröppu­stíg sem liggur upp úr Kópa­vogs­dal og upp á Digra­nes­heiði með 52 metra hækkun. 

„Ég bý rétt hjá Himna­stig­anum og hann er svo frá­bært tól, þetta er svo góð hreyf­ing og aðgengi­leg. Það geta allir farið á sínum hraða. Þú getur stoppað eins oft og þú vilt, skoðað útsýnið og haldið svo áfram.“ Erla bauð fólki að ganga með sér Himna­stig­ann 365 sinnum, …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár