Þyrlan dró strengi yfir nýja hraunið og inn í Grindavík
Rafmagn Til­gang­ur­inn með lagn­ingu strengj­anna er að koma raf­magni til Grinda­víkur, en bær­inn fær sem stendur raf­magn í gegnum var­afl. Mynd: Golli

Þyrlan dró strengi yfir nýja hraunið og inn í Grindavík

Vel gekk að draga strengi um 300 metra yfir glæ­nýtt hraun við Grinda­vík í morgun. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar sá um verkið og ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar var með í för.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar aðstoð­aði í morgun við lagn­ingu þriggja stál­strengja yfir nýja hraunið sem varð til eftir eld­gosið fyrir viku síðan. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar var með í för og mynd­aði verkið. 

Björn Brekkan Björns­son, flug­stjóri hjá Land­helg­is­gæsl­unni, segir að til­gang­ur­inn með lagn­ing­unni sé að koma raf­magni til Grinda­víkur. „Við tókum stál­strengi og drógum þá yfir. Þeir eru þyngri. Það er erf­ið­ara að leggja tog beint niður.“ Strengirnir verða svo festir upp á búkka sitt­hvoru megin við hraunið áður raf­línur verða dregnar á milli.

Lagt á ráðinBjörn Brekkan Björns­son og við­bragðs­að­ilar skipu­leggja lagn­ingu strengs­ins fyrr í dag.

Aðspurður hvort Land­helg­is­gæslan hafi áður verið í svona verk­efnum segir Björn að þyrlan hafi ekki verið að draga mikið, þótt það hafi komið fyrir áður þegar þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar dró til­drátt­ar­taug frá drátt­ar­báti sem dró skipið Baldvin Þor­steins­son af strand­stað í land árið 2004. …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár