Grindvíkingar ganga nú um djúpan og dimman dal
Tendrar ljós fyrir Grind­vík­inga Sólný Páls­dóttir grind­vík­ingur tendrar ljós fyrir Grinda­vík að lok­inni guðs­þjón­ustu í Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju á mánu­dag­inn var. Mynd: Heiða Helgadóttir

Grindvíkingar ganga nú um djúpan og dimman dal

Grind­vík­ingar eru nú á göngu um djúpan og dimman dal, sagði séra Elínborg Gísla­dóttir á sam­veru­stund þeirra á mánu­dag. Helga Fríður er þreytt og búin á því, en hún hefur þurft að taka erfið sam­töl við yngstu börnin sín, 6 og 8 ára. Börnin eru hrædd og hún finnur ekki hjálp fyrir þau. Hjónin Haf­steinn og Ágústa eru komin í leigu­í­búð, en bíða þess að kom­ast aftur heim.

Fólk streymdi að Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju síð­degis á mánu­dag, dag­inn eftir að sprungur opn­uð­ust úr jörðu rétt fyrir utan Grinda­vík, innan og utan varn­ar­garð­anna með þeim afleið­ingum að hraun­flæðið hrifs­aði með sér þrjú hús, heim­ili fólks sem nú er á flótta undan nátt­úru­ham­förum, líkt og Grind­vík­ingar allir. Und­an­farnir mán­uðir hafa ein­kennst af álagi, óvissu og streitu. Og það reynir á. 

Rúmir tveir mán­uðir eru liðnir frá því að bær­inn var fyrst rýmdur, þann 10. nóv­em­ber, þegar allt lék á reiði­skjálfi og í ljós kom að kvikan lá undir bænum. Á síð­ustu dögum varð mann­skaði vegna ástands­ins í bænum og nokkrum dögum síðar rætt­ist svartasta sviðs­myndin, þegar hraun fór yfir byggð í fyrsta sinn frá 1973. Þess vegna eru sam­veru­stundir sem þessar kær­komnar og þétt var setið í kirkj­unni. 

Á fremsta bekk sat bæj­ar­stjór­inn, Fannar Jónasson. Hægt er að ímynda sér að á sunnu­deg­inum hafi hann fylgst grannt með því hvort …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Góð grein, og nauðsynleg. Þjóðin stendur með Grindvíkingum og hlustum á þá. Hvað vilja Grindvíkingar. Jörðin gliðnar og breytist og miðað við sögulegar heimildir getur þetta varað í nokkur ár. Þrátt fyrir að heimahagar séu bestir þá þurfa Grindvikingar að fá stuðning í að búa sér heimili.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjaneseldar

Mest lesið undanfarið ár