Sjö ráðherrar hafa gerst brotlegir við lög frá hruni

Sjö ráðherrar hafa gerst brotlegir við lög frá hruni

Frá efna­hags­hrun­inu 2008 hafa sjö ráð­herrar gerst brot­legir við lög í emb­ætti. Svandís Svav­ars­dóttir hefur gerst brot­leg tvisvar sinnum – bæði árin 2023 og 2010. Algeng­ast er að ráð­herrar hafi brotið í bága við jafn­rétt­islög. Tvær afsagnir hafa orðið í kjöl­far lög­brota ráð­herra.

Í síð­ustu viku komst umboðs­maður Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefði ekki haft nægi­lega skýra laga­stoð að baki frestun hennar á hval­veiðum síð­asta sumar. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Svandís, eða aðrir ráð­herrar, hafa gerst brot­leg við lög í starfi sínu.

Skammt er síðan að umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarna Bene­dikts­son hafi brostið hæfi þegar hann tók ákvörðun um að selja félagi föður síns hlut í Íslands­banka í mars 2022 og að væri í and­stöðu við van­hæf­is­á­stæður stjórn­sýslu­laga. Bjarni brást við þeirri nið­ur­stöðu með því að segja af sér sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þann 10. októ­ber í fyrra en taka við sem utan­rík­is­ráð­herra fjórum dögum síðar. 

Þó nokkur önnur dæmi eru um að ráð­herrar brjóti í bága við lög en til dæmis brutu Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, Ögmundur Jónasson, Bjarni Bene­dikts­son og Lilja Alfreðs­dóttir öll jafn­rétt­islög á meðan að þau sátu …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár