Raunveruleikinn er skáldskapur hvers og eins

Tólfta plata Gusgus, DanceOrama, er komin út. Raf­dan­stríóið fyllti Eld­borg­ar­sal Hörpu fjórum sinnum og er komin á eft­ir­sókn­ar­verðan stað með auð­þekkj­an­lega tón­list sína, sem er í sífelldri fram­rás. Dr. Gunni hitti Gusgus á kaffi­húsi í Skeif­unni til að reka úr þeim garn­irnar um nýju plöt­una, for­tíð­ina og fram­tíð­ina. Og húð­krem.

Raunveruleikinn er skáldskapur hvers og eins

Auðvitað er Skeifan kol­vit­laus staður fyrir Gusgus. Þetta er kaó­tískur staður, á köflum sjú­sk­aður, mal­bikið hæð­ótt og sprungið. Hér er lítið um menn­ingu og listir, meira um outlet og skyndi­bita. Mér dettur í hug að sniðugra hefði verið að hitta Gusgus í Skugga­hverf­inu með sínum stíl­hreinu, köldu og rík­mann­legu bygg­ingum – það hefði passað betur við stíl­hreina tón­list Gusgus. En hér erum við á Café Mílanó, menn­ing­ar­legri vin í eyði­mörk Skeif­unnar. Þau eru mætt, Birgir Þór­ar­ins­son (Biggi veira), Daníel Ágúst Har­alds­son og Margrét Rán Magn­ús­dóttur.

Nýja platan, Danceorama, kemur með miklum for­mála. Hér er verið að fjalla um rave-versl­un­ar­mið­stöð hinnar nostal­gísku fram­tíðar. Takt­arnir eru pump­andi nettir, grúfið gott, lögin góð, bæði sungin og ósungin. Það liggur bein­ast við að spyrja strák­ana hvort þeir hafi verið í ein­hverjum reifum hér í Skeif­unni á 10. ára­tugnum. Þeir kann­ast ekki við það. „Aftur á móti renndi ég mér mikið á hjóla­skautum í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár